Sage Sonic Spey Outfit

159.900 kr.

Sage Sonic Spey Outfit

Einstakt tækifæri til að eignast fluguveiðipakka af vönduðustu gerð á verulega góðu verði.

Við
höfum sett saman tvíhendupakka með Sage Sonic flugustöng, Redington Behemoth
hjóli hinni frábæru Scandi Outbound línu frá Rio.  Verðið á þessum pakka er eins og á
stakri stönginni eða með öðrum orðum færðu frítt Redington Behemoth
fluguhjól, Rio Scandi Outbound tvíhendulínu og undirlínu frítt með stönginni.

Einstakt tilboð á tvíhendupakka af vönduðustu gerð á verði sem ekki verður endurtekið.

Stöngin

Sage Sonic Spey er byggð á Konnetic tækninni og er því afar aflmikil stöng
en um leið nákvæm og sterk.
Sage Sonic Spey er fáanleg í 11.6 feta Switchútgáfu en einnig 13.6 og 14
feta fullvaxta tvíhendur eða með öðrum orðum lengdir og línuþyngdir fyrir
íslenskar ár.
Sage Sonic Spey eru fjögurra hluta nema 14 feta stöngin sem kemur í 6 hlutum
og því afar hentug til lengri ferðalaga.
Sage Sonic Spey stangirnar bera jafnt Scandi og Skagit línur og allt frá
flotendum upp í T-20 sökkenda og skila löngum mjúkum nákvæmnisköstum.
Allar Sage stangir eru handgerðar hjá Sage á Bainbridge eyju utan við
Seattle í Bandaríkjunum.
Sage Sonic Spey er í hópi bestu stanga á verði sem kemur á óvart.

Hjólið
Redington Behemoth er eitt vinsælasta hjólið frá Redington.  Ál hjól með feykiöflugu og mjúku bremsuátaki.  Hjólið er með djúpri V-laga spólu sem tekur mikið magn af 30 punda baklínu.  Hulstur fylgir.

Línan
Rio Scandi Outbound Elite.  Vel heppnaður skothaus áfastur rennilínu eða með öðrum orðum engar samsetningar.  Rio Scandi Outbound er sérstaklega hönnuð fyrir Íslandi og Skandinavíu.  Línan er byggð á teygjulausa Elite kjarnanum með SlickCast sem er sleipasta og endingarbesta kápan á markaðnum.  Rio Scandi Outbound vinnur vel í höndum byrjenda og lengra komna.

Clear

Síminn Pay Léttkaup
kr/mán
(m.v. mán)

mán.

Miðað við greiðslur á % vöxtum.

Aðeins % lántökugjald og kr. færslugjald á mánuði.

Árleg hlutfallstala kostnaðar: %.

Heildarkostnaður: kr.

Sage