Undertaker örfluga
650 kr.
Undertaker
Hönnuður: Warren Duncan
Undertaker er ekki nema rétt ríflega 40 ára gömul fluga þó margir haldi að hún sé mun eldri.
Undertaker er falleg fluga, sér í lagi þegar hún er hnýtt með rauðum haus á gullkrók.
Hér er Undertaker hnýttur með svörtum haus á gylltan örkrók. Undertaker er einna best síðsumars og veiðir vel í litlu og tæru vatni þegar henni er kastað með löngum og grönnum taumi.
Hér er uppskrift af Undertaker:
Undertaker
Krókur – VMC 9617G
Tvinni – Svartur UNI 8/0.
Broddur – Flatt Uni gull tinsel, því næst flúrljómað grænt Glo Brite og að lokum flúrljómað appelsínugult Glo Brite.
Vöf – Gylltur Semperfli vír.
Búkur – Svart UNI flos (á stærri króka er fallegra að nota fanir af Páffuglsfjöður).
Skegg – Nokkrar fanir af svartlitaðri hanahálsfjöður.
Vængur – Hár af svartlituðum Íkorna (á minnstu króka er oft smekklegra að nota svartlitaða kanínu).
Kinnar – Fanir af frumskógarhana (JC)
Haus – Svartur eða rauður eftir smekk. Ef valið er rautt kemur betur út að nota rauðan hnýtingartvinna og lakka tvær til þrjár umferðir með glæru lakki yfir og láta þorna vel á milli umferða.
Þar sem erfitt er orðið að fá frumskógarhana nú til dags á skaplegu verði er vert að benda á að framleiðendur á borð við Semperfli eru farnir að framleiða mjög líflegt og fallegt efni sem hægt er að nota í staðinn fyrir ekta fjaðrir.