Waffle Baloon Caddis Foam Tan
385 kr.
Waffle Baloon Caddis Foam Tan
Við kynnum hér aðra vöffluflugu úr smiðju hins þekkta sænska hnýtara Niklas Dahlin en vöffluflugurnar hans hafa verið vinsælar á flugubarnum okkar í sumar.
Vöfflunafnið er dregið af vöfflumynstri búks flugunnar. Niklas myndar þetta skemmtilega munstur einfaldlega með því að klemma svampinn með töng.
Þessa flugu hannaði Niklas út frá Balloon Caddis flugu Roman Moser.. CDC fjaðrirnar og hjartarhárið ásamt svampinum halda þessari flugu hátt á yfirborðinu og gera hana vel sjáanlega veiðimanni..
Kastaðu flugunni með löngum og grönnum taumiandstreymis og láttu hana reka frjálslega með straumi.
Hér er á ferð ein sterkasta Caddis flugan sem við þekkjum.






