Höldum flugugleðinni áfram

Veiðihornið efnir til fluguhnýtingakeppni í mars.
Við leitum að skemmtilegum flugum í Jóladagatalið 2026 – 24 flugur til jóla!

Keppnin er einföld!

Þú sendir okkur frumsamda flugu og nafn hennar eða þína útgáfu af vel þekktri flugu ásamt uppskrift, nafni þínu og símanúmeri / netfangi. Flugum þarf að skila í síðasta lagi 31. mars. Það skemmir ekki ef skemmtileg veiðisaga eða saga um fluguna fylgir með.

Keppt er í tveimur flokkum; silungaflugur og laxaflugur

Allar bestu flugurnar veljast í jóladagatalið 2026, allt að 24 flugur í hvorum flokki.

Þrjár bestu flugur í hvorum flokki verða verðlaunaðar sérstaklega og afar glæsileg verðlaun í boði …

Auk þessara verðlauna fá allir hnýtarar sem eiga flugu í Jóladagatalinu 2026 sitt eintak af dagatalinu. Keppnin stendur út mars og nöfn sigurvegaranna þriggja í hvorum flokki kynnt í byrjun apríl eftir að sérstaklega skipuð dómnefnd fer yfir. Dómnefnd skilar niðurstöðum og úrslit verða kunngjörð í byrjun apríl.

Um jóladagatalið

Jóladagatalið, 24 flugur til jóla er farið að vekja mikla athygli. Ekki bara hér á landi heldur bæði í Evrópu og Bandaríkjunum.

Í fjögur ár hefur Veiðihornið í samvinnu við Shadow Flies í Thailandi framleitt jóladagatal fyrir fluguveiðimenn. Vinsældirnar hafa aukist ár frá ári enda spennandi að vakna á hverjum morgni aðventunnar, smeygja sér í inniskóna, kíkja á flugu dagsins og telja niður í nýtt veiðitímabil.

Við trúum því að Jóladagatalið 2026 verði skemmtilegra en nokkru sinni fyrr, troðfullt af nýjum og spennandi flugum.