Þrjár nýjar íslenskar flugulínur

RIO framleiðir sérstaklega fyrir Veiðihornið

Allir þekkja RIO ÞYT. Nú lokum við hringnum því ÞYTUR kemur nú einnig í sökkhraða þrjú en fyrir eru flotlína og glær hægsökkvandi.
Auk þess kynnum við RIO BLÆ og RIO STORM. Allar þessar þrjár eru á leið til landsins og koma í vikulok.

Tryggðu þér einstakar flugulínur í forsölu í netverslun með 20% forsöluafslætti.

Við kynnum nýjan RIO ÞYT

RIO ÞYTUR hefur svo sannarlega slegið í gegn frá því hún kom fyrst á markaðinn, árið 2024. Fyrsta árið var RIO ÞYTUR eingöngu framleidd sem flotlína. Í fyrra bættum við nýjum ÞYT með glærum hægsökkvandi haus og nú kemur nýjasta línan í þessari fjölskyldu fram á sjónarsviðið, RIO ÞYTUR með sökkhraða III.

Þrílit línan, SlickCast húðun kápunnar og stuttur skothausinn gera RIO ÞYT að einhverri bestu flugulínunni á markaðnum, ekki síst fyrir þá sem eru lítt vanir eða jafnvel byrjendur.

Við kynnum RIO BLÆ

RIO BLÆR er fullkomin flotlína hvort sem þú veiðir með þyngri flugum niður við botn eða smáum flugum í yfirborðinu. Uppbygging línunnar með þyngdarpunktinn framarlega í vel hönnuðum hausnum gerir RIO BLÆ einstaklega auðvelda í allri notkun.  Afar auðvelt er að stjórna lengd kasta, nákvæmni línunnar í lofti og hraða hennar í straumvatni.

Lengdarköst, nákvæmni og fínleg framsetning flugu á vatn er leikur einn með RIO BLÆ sem eingöngu er framleidd sem flotlína.

RIO BLÆR er þrílit lína með auðsýnilegum hleðslukafla og sleipri SlickCast kápu.

Við kynnum RIO STORM, tvíhendulínu

RIO STORMUR er skotlína með stuttum haus og samfastri rennilínu. Stormur er hannaður til að hlaða stangir hratt og auðvelda tvíhenduköst.

STORMUR er byggður á teygjulausum kjarna með sleipri SlickCast kápu sem rennur hratt og endist lengi.

Þyngdarpunkturinn liggur aftarlega í hausnum og auðveldar því hleðslu stangarinnar. Frammjókkunin er nógu löng til að mynda þröngan bug í köstum og leggja línuna ljúflega á vatn.

RIO STORMUR ber auðveldlega Rio Versi-Tip enda sem fáanlegir eru í tveimur lengdum og nokkrum þyngdum. 

RIO STORMUR er þrílit lína með auðsýnilegum hleðslukafla og sleipri SlickCast meðhöndlaðri kápu.

Tryggðu þér einstakar flugulínur í forsölu í netverslun með 20% forsöluafslætti …

Nýju línurnar í FORSÖLU

-20%
Original price was: 17.995 kr..Current price is: 14.396 kr..
-20%
Original price was: 17.995 kr..Current price is: 14.396 kr..
-20%
Original price was: 21.995 kr..Current price is: 17.596 kr..