Á samsettu myndinni hér að ofan eru nokkrir að verðlaunahöfum Veiðikeppninnar. Frá vinstri: Hrafnkell Frosti Ómarsson, Vilhjálmur Snær Ágústsson, Fanney Ósk Óskarsdóttir, Elva Lóa Iðunnardóttir, Bríet og Marín Björgvinsdætur, Ari og Erna Einarsbörn, Ágúst Þór Davíðsson og svo heldur Arnar Derrick Stephens á sínum verðlapakka.
Veiðihornið stóð fyrir skemmtilegri keppni í sumar eða veiðikeppni unga fólksins. Keppnin sem var fyrir börn og ungmenni, 15 ára og yngri gekk útá að veiða sem flestar tegundir fiska.
Keppnin gekk framar vonum og varð á endanum umtaslvert stærri en okkur hafði órað fyrir í byrjun. Tæplega 700 börn voru skráð í keppnina og 377 þeira sendu inn samtals 578 skráningar 25 tegunda en fjölmargar myndir af hamingjusömum veiðimönnum má sjá í myndasafni keppninnar.
Fanney Ósk Óskarsdóttir fékk verðlaun fyrir skemmtilegustu myndina sendi Eyjólfur Svanur.
Skráningarnar skiptust þannig að 47 ufsar veiddust, 158 urriðar, 72 bleikjur, 22 laxar, 48 kolar, 14 flundrur, 72 þorskar, 21 ýsa, 68 marhnútar, 5 lýsur, 6 krabbar, 8 krossfiskar, 4 álar, 2 rauðsprettur, 8 sprettfiskar, 3 loðnur, 4 hrognkelsi, 3 karfar, 5 hornsíli, 3 síldar en auk þess 1 skrápflúra, 1 steinbítur, 1 flyðra, 1 wahoo og 1 furðufiskur sem nefnist stóri mjóni en við þurftum að leita til Hafrannsóknarstofnunar til að greina þann fisk.
Hér að ofan eru allir verðlaunahafarnir
Þegar lagt var upp með keppnina í vor skiptum við henni í þrjá flokka en keppt var í flokkum 3ja tegunda, 6 tegunda og 9 tegunda. Í lok keppninnar drógum við nöfn þriggja heppinna veiðimanna í hverjum flokki og fengu þeir allir veiðibúnað frá Abu í verðlaun. Veiðimennirnir efnilegur sem hlutu verðlaun eru þessir: Breki Þór Sævarsson, Erna Einarsdóttir, Elva Lóa Iðunnardóttir, Ágúst Þór Davíðsson, Nökkvi Hrafn Orrason, Arnar Derrick Stephens, Hrafnkell Frosti Ómarsson, Vilhjálmur Snær Ágústsson og Ari Einarsson. Auk þessara 9 fékk Fanney Ósk Óskarsdóttir verðlaun fyrir skemmtilegustu myndina svo og systurnar Bríet og Marín Björgvinsdætur fyrir furðufiskinn stóra mjóna.

