24 flugur til jóla

Forsala er hafin. – Í fyrra fengu færri en vildu.

Líkt og fyrri ár verða jóladagatölin tvö í ár. Annars vegar 24 silungaflugur til jóla og hins vegar 24 laxaflugur til jóla. Að þessu sinni verða jóladagatölin sérstaklega spennandi því í þeim er fjöldinn allur af nýjum leyniflugum.

Við efndum til fluguhnýtingakeppni síðastliðinn vetur og óskuðum eftir nýjum flugum eða nýjum útfærslum á eldri og þekktari flugum. Hnýtarar létu ekki á sér standa en bæði þekktir og óþekktir hnýtarar sendu inn flugur í keppnina enda voru verðlaunin glæsileg auk þess sem auðvitað er spennandi að eiga flugu í jóladagatölunum vinsælu.

Tryggðu þér jóladagatal í forsölu og kannski frábæra handgerða bandaríska flugustöng í kaupbæti.

Nöfn allra sem kaupa jóladagatal í forsölu lenda í potti. Á Þorláksmessu munum við draga nafn eins heppinns viðskiptavinar úr pottinum og viðkomandi fær splunkunýja Sage Arrow flugustöng að verðmæti 149.900 kr. í jólagjöf frá okkur í Veiðihorninu.

Við látum ekkert uppi um innihald dagatalanna en víst er að eigendur þeirra eiga eftir að sjá margar spennandi nýjar flugur í desember. Forsalan er hafin og hvetjum við fluguveiðimenn til tryggja sér eintak því dagatölin seldust upp í fyrra munu örugglega seljast einnig upp í ár.