Sitka í Veiðihornið

Veiðihornið er viðurkenndur söluaðili fyrir Sitka Gear en Sitka veiðifatnaðinn þarf vart að kynna fyrir íslensku veiðimönnum.

Sitka Gear er ungt fyrirtæki, stofnað árið 2005 en hefur verið í eigu W.L. Gore & Associates síðan 2009 en WL Gore & Associates er fyrirtækið sem fann upp Gore-Tex efnið og hefur verið leiðandi um langt skeið í þróun og framleiðslu á öndunarskiljum og einangrunarlögum í útivistarfatnað. Eignarhaldið á Sitka Gear tryggir því að Sitka er í fremstu röð í skotveiðifatnaði fyrir erfiðustu og mest krefjandi aðstæður.

Sitkadeildin 

Úrvalið í Sitkadeildinni okkar er nú þegar orðið ágætt og á eftir að stóraukast á næstu vikum þegar stærstu sendingar haustsins koma í hús.

Veiðihornið býður gott úrval af vatmsheldum Gore-tex jökkum og buxum en einnig mikið úrval af einangrunarlögum, undirfatnaði, húfum og hönskum.

Við bjóðum sem stendur fjórar gerðir af felumynstri sem fellur vel inn í allar aðstæður, allt frá kornökrum í haustlitum og upp í hrjóstrugt hálendið.

Stór hluti af vönduðum fatnaði frá Sitka er kominn í vefverslun Veiðihornsins.

Sitka í netverslun