Veiðiparadís á hálendinu

Ljósmynd: Shutterstock

Þessi grein birt­ist áður í blaðinu VEIÐI XV sem Veiðihornið gaf út í apríl 2026. 

Veiðivötn á Landmannaafrétti eru veiðiparadís sem fjölmargir veiðimenn hafa tekið ástfóstri við. Þetta er klasi vatna, einhvers staðar í kringum fimmtíu vötn sem geyma urriða og bleikju. Vötnin eru frjósöm lindarvötn á eldvirku svæði og misjöfn að stærð og lögun. Veiðifélag Landmannaafréttar er veiðiréttarhafi í vötnunum og sér um fiskrækt og veiðinýtingu.

Lengi vel var bara urriði í vötnunum. Það var svo upp úr 1965 þegar bleikju var sleppt í nálæg vötn sem höfðu samgang við Veiðivötnin í gegnum Tungnaá, að hún fór að dreifa sér um svæðið. Bleikjan hefur dreift sér og nú hafa veiðst bleikjur í Litlasjó. Reyndar aðeins tvær, en hún virðist vera mætt þangað. Svo þarf bara að koma í ljós hvort hún nær sér á strik eða ekki.

Magnús Jóhannsson, fiskifræðingur hefur rannsakað Veiðivötn áratugum saman. Hér handleikur hann urriða úr Grænavatni árið 2014.

Bleikjan áhyggjuefni

Útbreiðsla bleikjunnar á svæðinu er mörgum áhyggjuefni. Hún hefur einfaldlega betur í samkeppninni við urriðann. Nýliðun urriðans ekki verið upp á marga fiska. Einkum í þeim vötnum þar sem skortur er á góðum hrygningarbúsvæðum fyrir urriða með möl og vatnsrennsli. Má segja að veiði í Veiðivötnum sé verulega háð seiðasleppingum og voru sum þessara vatna fisklaus áður en fiskirækt hófst þar. Einkum eru það stærri vötnin.

Í þeim vötnum þar sem uppgangur bleikjunnar hefur verið hraður hefur urriðinn aftur á móti átt erfiðara uppdráttar. Síðari ár hefur veiðst meira af bleikju í Veiðivötnum en af urriða þegar horft er til heildarveiði.

Það var árið 1972 sem fyrst varð vart við bleikju í Snjóölduvatni. Það varð hæg fjölgun fyrst í stað. En eftir árið 2000 hefur bleikjan náð uggafestu og það komið niður á urriðaveiðinni í þeim vötnum þar sem framgangur hennar hefur orðið hvað mestur. Síðustu tíu ár (2015 – 2024) hefur meðalveiði á urriða verið um 12.600 fiskar. Þar af er ríflega áttatíu prósent veitt á stöng. Þegar horft er til meðalveiði á bleikju þá er hún á sama tímabili um 23 þúsund fiskar og rétt um helmingur á stöng og örlítið minna hlutfall í net.

Tálknlúsin kemur með bleikjunni

Netaveiði í vötnunum er stunduð eftir að stangaveiðitímabilinu lýkur um miðjan ágúst. Síðari ár hefur dregið úr netaveiði á svæðinu þó að enn sé hún stunduð í nokkrum mæli. Reynt hefur verið að hefta fjölgun bleikju með markvissum netaveiðum en það hefur ekki gengið jafnvel og menn voru að vona. Það virðist vera samhengi milli þess að greinst hefur tálknlús í urriða í þeim vötnum þar sem bleikja nær sér á strik. Lúsin sú virðist eingöngu bundin við þau vötn þar sem bleikjan hefur náð útbreiðslu. Tálknlúsin berst því að öllum líkindum með bleikjunni. Hún er snýkjudýr sem eins og nafnið bendir til sest í tálkn fiska og sýgur þar blóð. Fiskar sýktir af tálknlús eru oft horaðir og verr haldnir. Tálknlús er einnig þekkt í laxi en það er bundið við laxa sem eru að koma aftur í ferskvatn. Hafa lokið hrygningu og haldið til sjávar á ný, eða svokallaðir endurkomulaxar.

Magnús Jóhannsson fiskifræðingur til áratuga, fyrst hjá Suðurlandsdeild Veiðimálastofnunar og svo hjá Hafrannsóknastofnun hefur rannsakað Veiðivötn og flutti erindi um stöðuna og þróunina, þar efra. Erindið var flutt á ráðstefnu Hafrannsóknastofnunar síðastliðið vor undir merkjum Upptaktur að veiðisumri. Þar fór Magnús yfir rannsóknir sínar og Benónýs Jónssonar. Magnús tók Snjóölduvatn sem dæmi.

En eins og fyrr segir þá varð fyrst vart við bleikju í vatninu árið 1972. Henni fjölgaði svo jafnt og þétt án þess að það gerðist í einhverjum stökkum. Á móti hefur dregið úr urriðaveiði í vatninu og segir Magnús bein tengsl þar á milli og urriðinn verður undir í þeirri samkeppni.

Hvað er urriðinn að borða?

Áhugaverður hluti af rannsóknum Magnúsar og Benónýs er fæða og fæðuframboð í vötnunum. Vatnabobbi virðist vera algengasta fæða urriða í flestum vötnunum. Þá er skötuormurinn einnig áberandi fæða en nokkuð er misjafnt á milli vatna hvernig fæðusamsetning urriða er. Hornsíli skora frekar hátt en það eru fyrst og fremst botnlægar tegundir sem urriðinn virðist éta. Magnús getur sér þess til að mismunur á milli fæðusamsetningar í vötnunum, geti stafað af ólíkri botngerð vatnanna.

Ef við horfum til Stóra – Fossvatns, sem er dæmi um vatn í Veiðivatna­klasanum sem er í ágætri stöðu. Þar er ágætis nýliðun urriða og því ekki háð seiðasleppingum eins og mörg önnur vötn á svæðinu. Urriðinn í Stóra – Fossvatni er þannig í dag náttúrulegur, kominn af hrygningu í vatninu og vex þar og dafnar. Einungis urriði er í Stóra – Fossvatni og þar er skötuormur mikilvæg fæða fyrir urriðann. Skötuormurinn er krabbadýr sem lifir á botni vatnsins og ágætis biti fyrir urriða. Hann er í uppáhaldi og velur urriðinn hann umfram aðra fæðu ef hann er í boði. Þó hafa rannsóknir þeirra félaga sýnt að þarna eru sveiflur milli ára. Það koma ár þar sem lítið fannst af krabbadýrinu í maga þeirra urriða sem skoðaðir voru. Eftir því sem meira er af urriða í vatninu þá gengur á skötuorminn og framboð af honum sveiflast í samræmi við fjölda urriða.

Spennuþrunginn hálftími

Þetta er lengsta barátta sem hann hefur átt við sjóbirting og áætlar hann að viðureignin hafi tekið um hálftíma. „Það er mjög erfitt að þreyta svona stóran fisk í svo lítilli á. Hann fór af stað niður og ég veit ekki hvað við fórum í gegnum marga hylji en þeir voru margir,“ hlær hann.

„Þessi fiskur reyndi allt. Fór fyrir grjót og tók rokur og það er ótrúlega erfitt að eiga við svona stóran fisk við þessar aðstæður. Hann stökk og hann velti sér, fór undir holbakka og ég varð að vanda mig að vera alltaf nálægt honum  með stíft átak en ná að þreyta hann á sama tíma. Það er miklu auðveldara að eiga við svona fiska þar sem er mikið vatn og hann getur tekið langar rokur. Þá þreytast þeir fyrr. Til dæmis ef þú ert að eiga við stóran fisk í Tungufljóti í Syðri – hólma þá þreytist hann fyrr, en Vatnsá er svo lítil. Ég var stöðugt með pressu á hann og reyndi sem mest að vera neðan við hann. Svo þegar hann var loksins farinn að gefa sig náði ég að sporðtaka hann. Þvílík stirtla. Eftir að ég hafði náð honum gaf ég honum góðan tíma í vatninu áður en ég gerði nokkuð. Við þurftum báðir að jafna okkur og ég vildi vera viss um að hann væri að fá nóg súrefni þannig að ég lyfti honum ekki upp úr vatninu strax. Mín reynsla er að þeir þurfa að fá tíma til að jafna sig og eru rólegir fyrst á eftir meðan að þeir kasta mæðinni. Svo lyfti ég honum upp og er með myndavél á þrífæti. Ég hef gert þetta marg oft og er fljótur að setja upp dótið til að ná í að sem ég er að sækjast eftir.“

Ljósmynd: Shutterstock

Mikil veiði í Veiðivötnum

„Stórum hluta af veiðinni í þessum vötnum er haldið uppi með seiðasleppingum. Það stafar af því að í mörgum þessara vatna er erfið nýliðun. Ekki síst í stærsta vatninu sem er Litlisjór,“ upplýsti Magnús í erindinu. Hann segir að vatnið hafi líklega verið fisklaust fram til 1973 að seiðasleppingar hófust. Vissulega er einhver náttúruleg nýliðun í vatninu en hún flokkast sem minniháttar. Veiðin hefur verið mjög góð í vatninu á þessari öld og nefnir Magnús sem dæmi að á árunum 2010 til 2024 hafi hún numið 11,3 kílóum á hvern hektara. Hann tekur fram að það sé mjög mikil veiði. Til samanburðar þyki gott að fá 5 til 10 kíló á hektara í láglendisvötnum á Íslandi. En þessari veiði er haldið uppi með árlegum sleppingum 25 til 30 þúsund urriðaseiða. Öll seiði sem alin eru fyrir Veiðivötn koma undan klakfiski sem tekin er úr Veiðivötnum og þannig hefur það alltaf verið.

Með merkingum hefur verið fylgst með heimtum á sleppingum seiða. Í Grænavatni og Litlasjó hafa heimtur verið breytilegar milli ára – 5 til 10% er ekki óalgengt en þó koma ár þar sem heimtur fara yfir 20% og jafnvel enn hærra. Mest hefur verið sleppt af ársgömlum seiðum í Litlasjó og eins til tveggja ára seiðum í Grænavatn og virðast eldri og stærri seiðin komast betur af, ef miðað er við heimtur. Grænavatn er eins og Litlisjór vatn, þar sem náttúruleg nýliðun er mjög takmörkuð og byggir veiðin að mestu á seiðasleppingum. Vöxtur urriða er aðeins hraðari í Grænavatni en í Litlasjó.

Heimsmet?

Algengt er að endurheimtur á merktum fiskum séu að skila sér í þrjú til fimm ár en þó eru til áhugaverðar undantekningar. Þannig veiddist urriði í Litlasjó nítján árum eftir sleppingu. Magnús telur afar líklegt að þar sé um heimsmet hjá merktum urriða að ræða án þess að hann hafi það staðfest.

Það er merkilegt með þessa urriða að oft vaxa þeir upp í sextíu til sjötíu sentímetra en eftir það er algengara að þeir bæti við sig í þyngd og ummáli þegar þeirri lengd er náð. Vissulega lengjast þeir eitthvað en þyngdin er það sem fyrst og fremst eykst þegar urriðar í Veiðivötnum hafa náð svo mikilli stærð. Kann það að vera svipað og með mannskepnuna sem gjarnan bætir á sig þegar líður á æviskeiðið. Dæmi um íturvaxinn urriða má sjá á mynd sem tekin var af einum slíkum stórfiski. Hann veiddist á stöng 1. ágúst árið 2012. Magnús var á svæðinu og tók mynd af urriðanum sem mældist 82 sentímetrar og vó 8,2 kíló. Líklegur aldur þessa höfðinga er í kringum tíu ár. Það er engin smá skepna og að öllum líkindum er þetta stærsti urriðinn sem veiðst hefur á stöng í Veiðivötnum.

Veiði í Veiðivötnum hefst 18. júní í sumar, klukkan 15. Stangaveiðitímabilið stendur fram til 18. ágúst og lýkur klukkan 15, þann dag. Eftir það taka við netaveiðar eins og venjan er.

Svona var árið 2025

Veiðin í Veiðivötnun var góð í fyrra í það minnsta í samanburði við síðustu ár. Samtals veiddust 22.434 urriðar og bleikjur í Veiðivötnum. Það er er næst besta veiðin undanfarin sex sumur. Árið 2023 fór veiðin í 23.372 fiska en hin samanburðarárin var hún minni eins og súlurtitið sýnir.

Stærsti urriðinn sem veiddist í fyrra var engin smásmíði. Hann vó 7,76 kíló eða hátt í sextán pund. Þessi fiskur veiddist í Stóra Hraunvatni. Fiskar um eða yfir fimm kíló veiddust í Arnarpolli, Skeifunni, Litlasjó og í Stóra Skálavatni. Breiðavatn gaf stærstu bleikjuna sem vigtaði 2,8 kíló. Þegar horft er til meðalþyngdar þá var hún hæst í Ónefndavatni eins og oft áður. Þetta sumarið var hún 1,85 kíló.

Litlisjór gaf flesta fiska eða 5.681 og voru það allt urriðar, enda ekki bleikja til staðar þar. Snjóölduvatn gaf næst flesta fiska eða ríflega 4.700. Stærsti hluti aflans þar var bleikja. Önnur vötn sem gáfu góða veiði voru Stóra Fossvatn (2.315), Nýjavatn (2.134), Langavatn (2006) og Hraunvötn með 1.588 fiska.

Bleikjan er frábær matfiskur og það þó að hún sé smá. Komið var að veiðimanni við aðgerðarborðið í Veiðivötnum þar sem hann var flaka smábleikju. Eftir að hann lagði flakið til hliðar taldi hann, „Tvö þúsund,“ og við næsta flak sagði hann; „Fjögur þúsund.“

Nærstaddur veiðimaður heyrði þetta og spurði; „Hvað ertu að telja?“

Flakarinn leit upp brosandi. „Ég fór á veitingastað í vikunni og pantaði mér þar bleikju. Þetta var algert lostæti. Fékk lítið flak sem hafði verið steikt. Það kostaði tvö þúsund krónur, með smá meðlæti.“

Hvað er hann að borða?

Fæða urriðans er áhugaverður þáttur þegar stangaveiðimenn eru annars vegar. Hvað á að setja undir? Ef það er fluga þá kemur til dæmis til greina eftirlíking að rykmýslirfu. Eitthvað mjög smátt. Nú eða einhver eftirlíking af hornsíli/seiði. Rektor eða Hólmfríður eða hvers konar straumflugur. Kannski er til eftirlíking af skötuormi. Miðað við það sem Magnús Jóhannsson sagði í sínu erindi þá velur urriðinn hann, ef skötuormurinn er á annað borð í boði.

En síðast en ekki síst er það vatnabobbinn sem er líkast til aðalfæðan þegar upp er staðið. Þeir eru fjölbreyttir að lit og taka að því er virðist vera lit frá umhverfis sínu, að minnsta kosti að einhverju leiti. Kristján Friðriksson, Veiðivatnaáhugamaður og fluguhnýtari segist hnýta eitthvað af kuðungum en hefur líka brugðið á það ráð að nota Killerinn hans Þórs Nielsen. „Svo á ég eitthvað af flugum í boxum hjá mér sem eru búnar til úr glerperlum og UV lími. Bobbinn getur verið í ýmsum litaafbrigðum og þess vegna á maður nokkrar birgðir af mismunandi litum glerperlum,“ upplýsir Kristján. Hann segir að það hafi alveg slæðst fiskur á þessar flugur en hann hefur meira gaman af því að fá urriðann til að elta fluguna og taka hana með svolitlum látum. Kristján horfir þar oft til flugna sem hafa gefið honum veiði í gegnum tíðina.

Nefndu okkur nokkrar.
„Það er Gullbrá Jóns Inga Kristjánssonar. Svo náttúrulega Gullið hans Kára Ölverssonar. Svartur Nobbler stendur alltaf fyrir sínu. Svo hefur Nýrað hans Jóns Inga reynst mér vel. Flugan dregur nafn sitt af því að hún gaf fyrst fisk í Nýranu í Veiðivötnum.“

En hvað með hornsíla eftirlíkingar á borð við Hólmríði eða Rektorinn?
„Rektor, Hólmfríður og fleiri fá hiklaust að spreyta sig ef hann er eitthvað tregur. Hins vegar er það þannig að báðar þessar flugur er mjög léttar og maður er kannski frekar að leita í eitthvað þyngra til að koma þessu niður í þessum gígvötnum. En ég á svo sem Rektorinn með þungum kúluhaus og þannig finnst mér hann virka vel.“

En þá er það skötuormurinn. Á Kristján slíka flugu?
Hann hlær við. „Skötuormurinn tekur lit úr umhverfinu og ég hef einfaldlega verið að nota pínulítinn Nobbler. Þá er ég að tala um að hnýta hann í stærð tólf og leik mér að því að hafa hann brúnan eða svartan. Lykilatriðið er að hafa pínulítið rautt í rassgatinu á honum. Þá leikur hann skötuorminn.“ Kristján segist hafa stúderað þetta á ferðum sínum upp í Kvíslavatn í Kvíslaveitum. Hann segir að á ákveðnum stöðum í vatninu megi finna skötuorm og urriðinn er sólginn í hann. „Ég hef gjarnan verið með hnýtingagræjurnar með mér og prófað mig áfram hvað virkar hverju sinni.“

Viðtalið tók Eggert Skúlason