Veiðivötn á Landmannaafrétti eru veiðiparadís sem fjölmargir veiðimenn hafa tekið ástfóstri við. Þetta er klasi vatna, einhvers staðar í kringum fimmtíu vötn sem geyma urriða og bleikju. Vötnin eru frjósöm lindarvötn á eldvirku svæði og misjöfn að stærð og lögun. Veiðifélag Landmannaafréttar er veiðiréttarhafi í vötnunum og sér um fiskrækt og veiðinýtingu.
Færslur eftir merki: Sjóbirtingur
Hugsunin um þennan stóra sjóbirting, þennan tröllvaxna birting lét Maros ekki í friði. Tveimur dögum síðar var Maros aftur að veiða og kom að hylnum þar sem hann hafði séð þann risastóra. Fiskurinn leyndi sér ekki þegar hann sá hann fyrst. Aðeins bjartari en hinir og svona líka svakalega þykkur.
Tvisvar á ári er haldin vel sótt keppni í sjóbirtingsveiði í Danmörku. Keppnin fer fram við strendur Fjóns og að hluta til á strandlengju Jótlands. Veitt er frá ströndinni og hafa tveir Íslendingar sem Sporðaköst vita um stundað þessa keppni og tekið þátt níu sinnum.
Stærsti sjóbirtingur sem veiðst hefur í vor, kom á land fyrir nokkrum dögum síðan í Eldvatni í Meðallandi. Fiskurinn mældist 99 sentímetrar. Veiðimaðurinn sem fékk hann hefur veitt árum saman í Eldvatninu og var staddur í veiðistaðnum Villa. Síminn var orðinn batteríslítill þegar hann kom í Villann. Hann ákvað að setja símann í hleðslu í bílnum áður en hann óð út á veiðistaðinn. Engar myndir eru því til að þessum met fiski.




