Færslur eftir merki: VEIÐI XV

Heimili þeirra stærstu

Hann er stórt nafn í laxveiðinni á norðurhveli. Þekkir bransann inn og út. Hann rekur Lakselv í nyrsta hluta Noregs og hefur verið í leiðsögn árum saman á Íslandi og veitt allar helstu ár hér á landi og í mörgum af þeim löndum sem hafa státað af góðri laxagengd. Þetta er hinn danski Henrik Kassow Andersen. Búsettur í Danmörku utan laxveiðitímans en þess á milli á ferð og flugi og oftast til nyrstu héraða Noregs.

Tvær í jómfrúarferð á hreindýr

„Ég er búin að vera í kringum þetta á svo margan hátt í fjölmörg ár. Við erum með kjötverkun hér á Lindarbrekku í Berufirði. Ég er búin að vera að pakka og hantera hreindýrakjöt svo lengi. Eiður maðurinn minn er leiðsögumaður á hreindýr til fjölmargra ára og í gegnum hann og tengdapabba fáum við mikið af dýrum til að vinna. Ég hef líka farið í margar veiðiferðir og mig langaði að bæta þessu við,” segir Bergþóra Valgeirsdóttir Pedersen.