Færslur eftir flokki: VEIÐI-viðtöl skotveiði

Veiðiparadísin Ármót

Ármót í Rangárþingi ytra er ein besta gæsaveiðijörð á landinu. Þar ræður ríkjum Hafliði Halldórsson náttúrubarn og hestamaður. Það er alltaf mikið um að vera að Ármótum en bærinn dregur nafn sitt af því að jörðin er við ármót Þverár og Eystri Rangár. Gæsaveiðitíminn er sennilega sá tími árs sem hvað mest annríki er hjá Hafliða. Þá koma skyttur víða að og kaupa þjónustu, leiðsögn og veiðileyfi.

Tvær í jómfrúarferð á hreindýr

„Ég er búin að vera í kringum þetta á svo margan hátt í fjölmörg ár. Við erum með kjötverkun hér á Lindarbrekku í Berufirði. Ég er búin að vera að pakka og hantera hreindýrakjöt svo lengi. Eiður maðurinn minn er leiðsögumaður á hreindýr til fjölmargra ára og í gegnum hann og tengdapabba fáum við mikið af dýrum til að vinna. Ég hef líka farið í margar veiðiferðir og mig langaði að bæta þessu við,” segir Bergþóra Valgeirsdóttir Pedersen.

Stærsti framleiðandi sjónauka í Bandaríkjunum

Saga Leupold er merkileg en fyrirtækið fagnar brátt 120 árum frá stofnun. Leupold er fjölskyldufyrirtæki, enn í eigu afkomenda innflytjandanna sem stofnuðu félagið árið 1907.

Sóttu silfur og brons til Eistlands

Tveir kátustu og um leið stoltustu ferðamenn í Leifsstöð að morgni 14. september 2023 voru þær Elsa og María. Kátínan stafaði af því að loksins var að hefjast draumaferðin til Eistlands að skjóta rauðhjört.

Hreindýraskytta í hálfa öld

Hann er verður 67 ára í haust en labbar enn flesta veiðimenn af sér, ef því er að skipta. Siggi er hreindýraleiðsögumaður á svæðum 1 og 2 og þekkir þær slóðir eins og lófana á sér. Hann hefur verið í leiðsögn frá árinu 1991 og hefur aðstoðað skyttur við að fella rúmlega fimmtán hundruð dýr á ferlinum. Sjálfur hefur Siggi skotið ríflega sex hundruð dýr og þau flest í óleyfi, upplýsir hann. Komum betur að því síðar.