Giant Trevally á Farquhar Seychelles
Ég samdi við kokkinn í veiðihúsinu á Farquhar um að fá eina fötu af fiskafskurði í eldhúsinu og gefa Giant Trevally fiskunum sem halda til í bátalæginu á meðan ég kom drónanum fyrir í öruggri fjarlægð.
Í þessari óklipptu mynd má sjá GT í stuði og hægt er að gera sér í hugarlund hvernig tökurnar eru þegar þeir ráðast á flugur veiðimanna.
Stærstu fiskarnir þarna eru 140 sm. sem gæti verið um 60 kíló eða 120 pund.