Laxaflugur í áskrift – 3ja, 6, 9 eða 12 mánaða áskrift.
14.985 kr. – 59.940 kr.
Laxaflugur í áskrift
·
Veiðihornið hefur hafið sölu á flugum í áskrift en þessi skemmtilega áskriftarleið hefur verið vinsæl meðal fluguveiðimanna í Bandaríkjunum um árabil.
·
Hægt er að velja um áskrift að annars vegar silungaflugum
og hins vegar laxaflugum. Báðar áskriftir eru fáanlegar í fjórum mislöngum tímabilum eða þriggja, sex, níu eða tólf mánaða áskriftarpökkum.
Áskriftarleið er valin og greidd við kaup.
·
Einu sinni í mánuði fær áskrifandi senda fluguöskju með 6 til 10 flugum í ásamt glaðningi sem getur verið klippur, töng, tökuvari, línubón, taumastrekkjari eða annað nauðsynlegt á bakkann. Í boxinu eru einnig upplýsingar um flugurnar og síðast en ekki síst fylgir afsláttarávísun sem mun gilda á einni tiltekinni vöru í Veiðihorninu út mánuðinn en það getur verið vönduð flugustöng, vöðlur, fluguhjól, flugulína og margt fleira. Aukaglaðningar á myndum eru hugmyndir að fylgihlutum sem koma með flugum í áskrift mánaðarlega. Það er alltaf skemmtilegt að fá spennandi pakka.
·
Afslættir fara stighækkandi í samræmi við lengd
áskriftar en þeir eru 5% bronsafsláttur í þriggja mánaða áskrift, 10% silfurafsláttur í sex mánaða áskrift, 15% gullafsláttur í níu mánaða áskrift og
20% platínuafsláttur í 12 mánaða áskrift. Afsláttur af vandaðri tvíhendu er til dæmis 11.495 kr. með þriggja mánaða áskrift, 22.990 kr. með sex mánaða áskrift, 34.495 kr. með 9 mánaða áskrift og 45.980 sé 12 mánaða áskrift valin.
·
Fyrstu pakkarnir verða sendir nú í nóvember. Hér er því um frábæra jólagjöf að ræða þar sem þiggjandinn fær fyrsta pakkann fyrir jól, annan pakka í janúar, þann þriðja í febrúar, fjórða í mars og svo framvegis eða eftir því hve löng áskrift er keypt.
·
Nýr, spennandi pakki í hverjum mánuði. Afsláttur fer stighækkandi eftir lengd áskriftar.
Aðeins 4.995 kr. á mánuði. Burðargjöld eru innifalin í verði.