Silungaflugur í áskrift – 3ja, 6, 9 eða 12 mánaða áskrift

14.985 kr.59.940 kr.

Silungaflugur í áskrift

·     
Veiðihornið hefur hafið sölu á flugum í áskrift en þessi skemmtilega áskriftarleið hefur verið vinsæl meðal fluguveiðimanna í Bandaríkjunum um árabil.

 

·     
Hægt er að velja um áskrift að annars vegar silungaflugum og hins vegar laxaflugum.  Báðar áskriftir eru fáanlegar í fjórum mislöngum tímabilum eða þriggja, sex, níu og tólf mánaða áskriftarpökkum.

 

·     
Einu sinni í mánuði fær áskrifandi senda fluguöskju með 6 til 10 flugum í ásamt glaðningi sem getur verið klippur, töng, tökuvari, línubón, taumastrekkjari eða annað nauðsynlegt á bakkann.  Í boxinu eru einnig upplýsingar um flugurnar og síðast en ekki síst fylgir afsláttarávísun sem mun gilda á einni tiltekinni vöru í Veiðihorninu út mánuðinn en það getur verið vönduð flugustöng, vöðlur, fluguhjól, flugulína og margt fleira.  Aukahlutir á þessum myndum eru bara hugmyndir að aukaglaðningum sem fylgja með flugum í áskrift.  Það er alltaf gaman að fá spennandi pakka.

 

·     
Afslættir fara stighækkandi í samræmi við lengd
áskriftar en þeir eru 5% bronsafsláttur í þriggja mánaða áskrift, 10% silfurafsláttur í sex mánaða áskrift, 15% gullafsláttur í níu mánaða áskrift og 20% platínuafsláttur í 12 mánaða áskrift.  Afsláttur af vandaðri tvíhendu er til dæmis 11.495 kr. í þriggja mánaða áskrift, 22.990 kr. í 6 mánaða áskrift, 34.485 kr. í 9 mánaða áskrift og 45.980 sé valin 12 mánaða áskrift.

 

·     
Fyrstu pakkarnir verða sendir nú í nóvember.  Hér er því um frábæra jólagjöf að ræða þar sem þiggjandinn fær fyrsta pakkann fyrir jól, annan pakka í janúar, þann þriðja í febrúar, fjórða í mars og svo framvegis eða eftir því hve löng áskrift er keypt.

 

·     
Nýr, spennandi pakki í hverjum mánuði.  Afsláttur fer stighækkandi eftir lengd áskriftar. 
Aðeins 4.995 kr. á mánuði.  Burðargjöld eru innifalin í verði.

Clear

Síminn Pay Léttkaup
kr
Greiða eftir 14 daga

14 daga greiðslufrestur er í boði fyrir þessa vöru.

Smelltu hér til skoða verðskrá Síminn Pay.