Rio Blær
Original price was: 17.995 kr..14.396 kr.Current price is: 14.396 kr..
Rio Blær – FORSALA
Rio Blær er á leið til landsins og tilbúinn til afgreiðslu í lok mánaðarins. Tryggðu þér þessa frábæru línu með 20% afslætti í forsölu í netverslun.
Rio Blær er framleidd hjá Rio í Idaho í Bandaríkjunum fyrir Veiðihornið.
Rio Blær er hin fullkomna einhendu flotlína hvort sem þú veiðir með þyngri flugum niður við botn eða smáum flugum á yfirborðinu.
Uppbygging línunnar með þyngdarpunktinn framarlega í vel hönnuðum hausnum gerir Rio Blæ einstaklega auðvelda í allri notkun. Afar auðvelt er að stjórna lengd kasta, nákvæmni línunnar í lofti og hraða hennar í straumvatni.
Hvort sem þú þarft að velta yfir þungum flugum með tökuvara eða leggja smæstu þurrflugur ljúflega langt út á vatn er Rio Blær línan fyri rþig.
Lengdarköst, nákvæmni og fínleg framsetning flugu á vatn er leikur einn með Rio Blæ.
Rio Blær er heldur þyngri en staðlaðar línur og hentar því vel byrjendum sem vönustu kösturum.
Meiri kraftur. Meiri fjölhæfni.
Línan er byggð á hefðbundnum kjarna með u.þ.b. 7% teygju. Kápan er SlickCast meðhöndluð en SlcikCast er sleipasta og endingarbesta línukápan á markaðnum. Hún er með minnstu núningsmótstöðu sem mælst hefur á flugulínum.
MaxFloat meðhöndlunin gerir það að verkum að Rio Blær flýtur hátt á yfirborði.
Rio Blær er marglit lína með auðsjáanlegum hleðslukafla og taumalykkjum á báðum endum.
Rio Blær er framleidd fyrir Veiðihornið og íslenska veiðimenn.
Blær er einhendulína og fáanleg í línuþyngdum #5, #6, #7 og #8








