Simms þjónustudagar 13. og 14. mars

Frábær eftirþjónusta Simms

Von er á sérfræðingi frá Simms í Gore-tex viðgerðum dagana 13. og 14. mars nk.

Flyfish Europe sem er dreifingaraðili Simms í Evrópu rekur Gore-tex verkstæði í Noregi þar sem gert er við öll meiriháttar slysagöt á vöðlum og Gore-tex fatnaði.

Ef Gore-tex vöðlurnar þínar eru farnar að leka, hafa skemmst eða sýna merki um slit eftir góðar stundir á bakkanum, þá er þetta rétta tækifærið til að láta fara yfir, gera við og lengja líftíma þeirra.

Hver og einn má taka með sér að hámarki tvö pör af Simms Gore-tex vöðlum til yfirferðar og viðgerða. Vöðlurnar þurfa að vera hreinar og merktar (þvottaleiðbeiningar eru innan á vöðlunum).

Allar viðgerðir sem hægt er að framkvæma á staðnum eru ókeypis. Greiða þarf sanngjarnt verð fyrir viðgerðir framkvæmdar á Gore-tex verkstæðinu í Noregi.

Hvers vegna er Gore-tex yfirburðaefni?

  • Mesta vatnsheldnin og útgufunin.
  • Í Gore-tex efninu eru milljarðar örsmárra gata.
  • Hvert gat er 20.000 sinnum minna en vatnsdropi þannig að vatn kemst ekki inn.
  • Hvert gat er 700 sinnum stærra en gufumólikúl þannig að sviti og raki kemst út.

Þess vegna er Gore-tex filman yfirburðafilman í öllum útivistarfatnaði.  100% vatnsheldni og frábær útöndun. Mikil ending og þægindi við allar aðstæður.

Hvað skilur Simms Gore-tex vöðlur að frá öðrum merkjum?

  • Gore-tex öndunarfilman.
  • Frábær eftirþjónustan.

Af hverju að gera við í stað þess að kaupa nýjar?

Simms Gore-tex vöðlur er hágæða vara sem hönnuð er til að endast.  Með því að fá fagmenn til að fara yfir og gera við lengir þú líftíma vaðlanna þinna, viðheldur vatnsheldni og virkni.  Auk þess sparar þú peninga, styður við sjálfbærni og minnkar sóun. Með réttri meðhöndlun og umhirðu endast Simms Gore-tex vöðlurnar þínar í fjölda mörg ár.

Komdu með Simms Gore-tex vöðlurnar þínar til okkar, leyfðu fagmanni að fara yfir þær og koma þeim í stand fyrir veiðitímann sem hefst eftir aðeins fáeina daga.

Sérfræðingur í Gore-tex viðgerðum verður hjá Simms söluaðilum:

Föstudaginn 13. mars í Veiðihorninu Síðumúla 8
Laugardaginn 14. mars í Veiðivon, Mörkinni 6

Verið góð við veiðifélagana og segið frá frábærri eftirþjónustu Simms.

Hugsaðu vel um vöðlurnar þínar

– Myndband frá Simms þjónustudögum Veiðihornsins

Simms vöðlur