Pure Fishing til Veiðihornsins.
Bráð ehf., rekstrarfélag Veiðihornsins hefur tekið við umboði fyrir Pure Fishing og öll merki samsteypunnar.
Pure Fishing er gríðarlega stórt bandarískt félag sem á og rekur næstum 20 fyrirtæki og merki. Merki á borð við Abu, Hardy, Shakespeare, Greys, Mitchell, Berkley, Penn og fjöldamörg önnur eru í þessum hópi.
Það er okkur mikil ánægja að vera treyst fyrir dreifingu á öllum þessum vel þekktu og virtu merkjum í veiðiheiminum. Heildsöluhluti Bráðar ehf. verður efldur til muna til þess að sinna fjölmörgum endurseljendum víða um land auk þess sem vöruúrval eykst til muna bæði í Veiðihorninu Síðumúla og Veiðimanninum Krókhálsi.
Fyrsta sending er komin til okkar og lítill hluti af vöruúrvali kominn í netverslun. Önnur sending er væntanleg til okkar í desember.
Abu þarf ekki að kynna fyrir íslenskum veiðimönnum. Við spáum því að þessi stöng verði vinsæl hjá okkur.
Hardy verður 150 ára á næsta ári en þá verða einnig 120 ár frá því að Hardy Perfect fluguhjólið kom fyrst á markað. Það er enn í framleiðslu, sölu og notkun.
Shakespeare verður 125 ára á næsta ári. Shakespeare eru þekktir fyrir framleiðslu á stangaveiðivörum á mjög hagstæðu verði. Sjáðu til dæmis þessa.
Við munum segja betur frá öllum þessum vörumerkjum og vörum í fréttadálki næstu daga og vikur.
Óli