Vinsælu flugupakkarnir í áskrift!
Veiðihornið hefur hafið sölu að nýju á flugupökkunum í áskrift fyrir vormánuði en þessi skemmtilega áskrift sló gegn hjá okkur í fyrra. Áskrift sem þessi hefur verið afar vinsæl meðal fluguveiðimanna í Bandaríkjunum um árabil.
Hægt er að velja um áskrift að annars vegar silungaflugum og hins vegar laxaflugum. Báðar áskriftir eru fáanlegar í tveimur mislöngum tímabilum eða þriggja eða sex mánaða áskriftarpökkum. Áskriftarleið er valin og greidd við kaup.
Einu sinni í mánuði fær áskrifandi senda fluguöskju með 6 til 10 flugum í ásamt glaðningi sem getur verið klippur, töng, tökuvari, línubón, taumastrekkjari eða annað nauðsynlegt á bakkann. Í boxinu eru einnig upplýsingar um flugurnar og síðast en ekki síst fylgir afsláttarávísun sem mun gilda á einni tiltekinni vöru í Veiðihorninu út mánuðinn en það getur verið vönduð flugustöng, vöðlur, fluguhjól, flugulína og margt fleira.
Afslættir fara stighækkandi í samræmi við lengd áskriftar en þeir eru 10% silfurafsláttur í þriggja mánaða áskrift og 20% silfurafsláttur í sex mánaða áskrift.
Fyrstu pakkarnir eru afgreiddir í verslun eða sendir til áskrifenda nú í desember. Næsta útsending er í janúar og því um frábæra jólagjöf að ræða þar sem þiggjandinn fær fyrsta pakkann fyrir jól, annan pakka í janúar, þann þriðja í febrúar og svo framvegis eða eftir því hve löng áskrift er keypt.
Nýr, spennandi pakki í hverjum mánuði. Afsláttur fer stighækkandi eftir lengd áskriftar. Verð aðeins 5.995 krónur fyrir einn mánuð. Áskriftarpakkar eru greiddir fyrirfram. Burðargjöld eru innifalin í verði.