Ísland er mitt annað heimili

Frumskógaveiði hefur heillað Kötku. Í Brasilíu. Hér er hún með stórglæsilegt eintak af peacock bass sem hún veiddi í Rio Marie þegar hún heimsótti Xingu lodge sem er einn af þeim aðilum sem bjóða veiði þar í landi. Ljósmynd/Danny Bayer

Þessi grein birt­ist áður í blaðinu VEIÐI XIV sem Veiðihornið gaf út í maí 2025. 

Katka Svagrová heimsmeistari í fluguveiði

„Hæ. Ég var að koma frá Oman og er að fara á Everest á morgun. En já ég hef tíma,“ brosir Katka Svagrová í myndspjalli. Hver fyllist ekki lotningu þegar fólk er með svona dagskrá. „Nei. Ég er ekki að fara að klífa Everest. Ætla bara í grunnbúðir af því að ég hef gaman af skemmtilegum gönguleiðum. Það er ekki nema í rúmlega fimm þúsund metra hæð. Ég er ekki fjallaklifrari.“

 

Katka Svagrova er fjórfaldur heimsmeistari í fluguveiði.

Katka er ekki bara Íslandsvinur, hún lítur á eyjuna í Atlantshafi sem sitt annað heimili. Það er póstnúmer 276 Mosfellsbær sem hún er að vitna til. Nánar tiltekið veiðihúsið við Laxá í Kjós þar sem hún hefur verið leiðsögumaður um árabil. „Ef ég gifti mig einhvern tíma þá er draumastaðurinn að gera það við Laxfoss og halda veisluna í veiðihúsinu. Ef Halli samþykkir það,“ segir hún og það fer ekkert á milli mála að hún meinar það. Hún ætlar að koma í Kjósina sína í sumar og gæda. Þar saknar hún ekki síst Gylfa Gauts Péturssonar sem hún segir ígildi stjúppabba síns. „Fólkið í Kjósinni, Halli og Gylfi Gautur og allir eru nánast eins og mín fjölskylda og hef ég skotið djúpum rótum þar.“

Frumskógaveiði hefur heillað Kötku. Í Brasilíu. Hér er hún með stórglæsilegt eintak af peacock bass sem hún veiddi í Rio Marie þegar hún heimsótti Xingu lodge sem er einn af þeim aðilum sem bjóða veiði þar í landi. Ljósmynd/Danny Bayer

Hún hefur orðið heimsmeistari í fluguveiði, bæði sem einstaklingur og með tékkneska landsliðinu þrjú ár í röð. Keppni í kvennagreinum hófst fyrir þremur árum og þær tékknesku hafa unnið öll árin. Í einstaklingskeppninni hefur Katka fengið alla málmana. Fyrst silfur, þá gull og heimsmeistaratitil og nú síðast brons. Hún mun taka þátt í keppninni í sumar sem að þessu sinni er haldin í Montana í Idaho Falls. Keppnin fer fram í júlí á besta tímanum í Kjósinni. Það er ekki hægt að vera alls staðar en hún á heimsmeistraratitil að verja með landsliðinu sínu.

Hún ferðast í dag um heiminn og veiðir á öllum draumastöðunum og er orðin alþjóðleg samfélagsmiðlastjarna. „Já. Þetta gerðist bara. Ég hef fengið mikið af boðum um að koma og kynna áfangastaði og það er alltaf mjög skemmtilegt. Ég hef verið að ferðast mjög mikið og nánast um allan heim. Ég er sendiherra fyrir nokkur virt vörumerki í stangaveiðiheiminum. RIO flugulínur, Hardy og Patagonia.“

Katka sleppir laxi í Laxá í Kjós. Hún elskar að koma til Íslands og segir með stolti að þar eigi hún sitt annað heimili. Hún er ævinlega þakklát Haraldi Eiríkssyni, leigutaka að hafa gefið henni tækifæri í leiðsögn.

Aftur vornámskeið í Bugðu

Eins og Katka nýtur þessa þá dreymir hana um aðra hluti síðar. Kennsla er það sem hún brennur fyrir. Setja á laggirnar fluguveiðiskóla og bjóða námskeið bæði fyrir hópa og einstaklinga. Katka var með fluguveiðinámskeið fyrir konur í Kjósinni síðasta vor og hún ætlar að endurtaka það í ár. Dagsetningar liggja fyrir. 5. til 8. maí verða dagsnámskeið fyrir konur með áherslu á púpuveiði. Svo verður eitt slíkt aftur í boði 20. maí. Þetta eru kvennanámskeiðin. Svo verður hún með almenn námskeið dagana 13. til 16. maí sem hún kallar frá yfirborði til botns. Þar mun hún miðla af reynslu sinni í silungsveiðum og verður áherslan á bæði þurrflugur og púpur veiddar niður við botn. Euro nymhing. Öll þessi námskeið eru dags námskeið og verða haldin í Bugðu, hliðará Laxár í Kjós.

Gylfi Gautur Pétursson er kær vinur. Hún segir hann ígildi stjúppabba. Hér mátar karlinn medalíurnar hennar.

„Ég hef ferðast til 69 landa. Flest þeirra hef ég heimsótt til að veiða en alls ekki öll. Hins vegar ef ég ferðast til spennandi lands þá reyni ég alltaf að komast líka í veiði. Alltaf.“

Áttu einhverja staði eða fiska eftir? Eitthvað sem þig langar virkilega til að upplifa?

„Ójá. Það eru enn þó nokkrir staðir og fiskar sem mig langar að veiða. Efst á listanum er að fara til Afríku og veiða tígrisfisk. Mig langar að fara til Bhutan og veiða masheer og svo dreymir mig um silungsveiði í Kyrgystan. Það eru líka margir staðir sem mig langar að fara aftur til. Japan og Nýja -Sjáland. Já og svo er ég að skipuleggja veiðiferð til Suður – Kóreu,“ hlær hún vitandi að það verður erfitt að koma þessu öllu fyrir í þegar mjög bókaðri dagskrá fyrir 2025. Hún er búin að skipuleggja tuttugu veiðiferðalög á þessu ári. Þá er hún ekki að telja þær fjórar sem þegar eru að baki, það sem af er ári. Þessu til viðbótar er svo að vera í leiðsögn í Kjósinni í einhverjar vikur og halda námskeiðin sem lýst er fyrr.

Bólivía fyrir Íslendinga

Þú hefur kynnst íslensku veiðifólki vel. Með þau kynni í huga hvað stað myndirðu mæla með fyrir íslenska veiðimenn sem vilja prófa eitthvað nýtt?

Hún hugsar sig ekki um. „Bólivía. Það er líklega besti veiðitúr sem ég hef farið í. Það er hreint frábær staður. Ég hef farið þangað nokkrum sinnum og er að fara í enn eina ferðina í ár. Það er eins og þessir staðir sem maður er að veiða þar opni öll skilningarvit upp á gátt. Innfæddir eru mjög tengdir náttúrunni, ekki ósvipað og ég upplifi marga Íslendinga. Mér finnst margir á Íslandi vera með sjötta skilningarvitið fyrir náttúrunni. Ég er viss um að svo margir myndu elska þetta. En ég skil líka að margir hiki og hafi áhyggjur af veikindum, ferðamáta og öryggi. En ég er mjög ærleg þegar ég segi að ég hef farið með fyrirtæki sem heitir Tsimane og það hefur alltaf allt verið upp á tíu.“ Katka er hrædd við skordýr en segist ekki hafa þurft að hafa áhyggjur af þeim í Bólivíu. Auðvitað eru skordýr í frumskóginum en veiðifólk er á ferðinni við ána og í henni og þar sé nánast ekkert af skordýrum.

Draumur Kötku er að kenna og vera með eigin fluguveiðiskóla. Hún hefur þegar haldið námskeið víða um heim og þar á meðal á Íslandi. Hér leiðbeinir hún áhugasömum veiðimönnum í Suður-Afríku. Ljósmynd/Nick van Rensburg

Hvaða staður hefur komið þér mest á óvart?

Hér þarf hún að hugsa sig vel um. „Ég býst alltaf við einhverju stórkostlegu þegar ég er að fara að veiða. En ég get þó nefnt það að ég átti ekki von á að lenda í mikilli veiði í Króatíu. Ég hef farið þangað með fjölskyldunni í frí í fimmtán ár. Fyrst þegar ég fór tók ég bara með mér kaststöng. Var ekki að búast við að lenda í einhverjum ævintýrum enda fyrst og fremst hugsað sem frí með fjölskyldunni. Við ætluðum kannski að kasta á einhverja smáfiska í höfninni. Mér leiðist að liggja í sólbaði og vissi að ég þyrfti að hafa eitthvað fyrir stafni. Svo þegar við vorum komin niður á smábátahöfn þá sáum við skugga í sjónum og það var greinilega ránfiskur að elta smærri fiska. Ég veiddi einn lítinn fisk og beitti honum og kastaði út. Þarna veiddi ég minn fyrsta mahi mahi. Við urðum mjög hissa en næsta ár tók ég flugustöngina með og við lentum í góðri veiði á einmitt mahi mahi. Í dag er Króatía einn af mínum uppáhalds stöðum til að veiða. Ég bókstaflega elska Króatíu. Lyktina, sjóinn, litina, matinn og hugarfarið. En, já. Auðvitað líka hvað er mikið af mahi mahi þarna yfir sumartímann.“ Fyrir Kötku er Króatía í dag „must go“ á hverju ári.

Það er svo merkilegt að mahi mahi er að fjölga við strendur landsins við Adríahaf. Katka telur að þessa fjölgun megi rekja til loftslagsbreytinga þar sem sjórinn er að hlýna. „Þeir eru þarna frá júlí og fram í september. Fiskarnir sem við höfum verið að veiða frá ströndinni eru á bilinu 50 til 75 sentímetrar. Þeir eru ekkert sérstaklega stórir miðað við mahi mahi en hörku fiskar á flugustöng. Það er svo magnað að þessir fiskar sem eru orðnir í kringum 70 sentímetrar eru ekki nema þriggja mánaða gamlir. Mahi mahi er sá fiskur í heiminum sem tekur út hraðasta vöxt allra fiska.“ Eftir að hausta tekur og sjórinn kólnar aðeins hverfur hann frá ströndum Króatíu og leitar í hlýrri sjó.

Paraya eru svakalegir fiskar. Tennurnar einar og sér gera þessa fiska allt að því ógnvænlega. Þennan fékk Katka í Brasilíu. Frumskógurinn býður upp á mörg ævintýri.

Framtíðarheimili á Englandi

En hvað ætlar Katka að gera þegar hún verður stór? Áttu þér draum?

„Já. Ég leyfi mér að dreyma stórt og er þegar að leggja plön að því að láta drauminn minn rætast. Mig langar að setjast að á Englandi og vinna þar með námskeið og flugukennslu. Geta svo farið heim til mín á kvöldin. Þó ætla ég ekki að hætta að ferðast og sé líka fyrir mér að vera með skipulagðar ferðir, nokkrar á ári og halda námskeið í öðrum löndum, ef því er að skipta.“ Það má alveg heyra á Kötku að draumurinn um fastan samastað er ofarlega í hennar huga. Fækka ferðalögum í framtíðinni, en alls ekki hætta þeim. Finna rétta jafnvægið á ferðalögum og að vera heima.

Hún er líka að undirbúa sjónvarpsþætti sem sýna frá ferðalögum hennar víðs vegar um heiminn með flugustöng og forvitni að vopni. Þeir þættir verða aðgengilegir á netsíðunni Patreon á næstu mánuðum. Þættirnir verða líka kennslu efni þar sem hún fer yfir ólíkar aðferðir í fluguveiði. Einn slíkur þáttur var tekinn upp á Íslandi í bæði Laxá í Kjós og í Miðfjarðará. Fyrir alla þá sem hafa áhuga á að fylgjast með Kötku þá er einfaldast að finna hana á Instagram með því að slá inn nafnið hennar og komast þannig í samband við hana.

Á ferð sinni um Brasilíu hitti Katka þennan heimamann í frumskóginum. Hann var prúðbúinn og grandskoðaði veiðibúnað bleiknefjans. Óvíst hvort hann hafði trú á þessum græjum.

Svo er það Iguana eðlan – flugan sem hún hefur hannað og ætlar að framleiða. „Ég er búin að veiða fisk á hana í mjög mörgum löndum. Argentínu, Puerto Rico, Oman og víðar. Ég hef þegar veitt þrjátíu tegundir á þessa flugu og mig langar að prófa hana á Íslandi í smækkaðri útgáfu. Verður spennandi að sjá hvort hún virkar í laxi.“

Katka hefur veitt fiska víða um heim á eðluna. Hún ætlar að prófa litla útgáfu á Íslandi í sumar.

Þegar kemur að konum í fluguveiði er hún með skilaboð til kvenna. „Konur eiga að hafa fulla trú á sér í þessu sporti. Þetta snýst um að tengjast náttúrunni, ánni og sjálfum sér. Þó að þú kastir ekki jafn langt og karlmaður þá skiptir það engu máli. Vertu þolinmóð og hafðu trú á því sem þú ert að gera og umfram allt njóttu þess. Þetta snýst ekki um kastlengdina eða fjölda fiska. Þetta snýst um að hafa gaman af því sem maður er að gera.“ Hún bætir því við að konur séu að hennar viti betri nemendur þegar kemur að fluguveiði. „Þær eru fljótari að tileinka sér hlutina og þær kunna betur að hlusta.“

Katka hefur áhyggjur af Atlantshafslaxinum. Sjókvíaeldið og mögulegt erfðasmit frá strokulöxum er henni ofarlega í huga. „Mig langar að sjá veiðifólk láta til sín taka í baráttunni við þessa ógn. Við verðum að halda áfram og megum ekki gefast upp. Laxinn er svo sérstakur fiskur og við þurfum að gera allt sem við getum til að tryggja framtíð hans. Við höfum séð svo slæmar afleiðingar í Noregi, Skotlandi og Englandi. Við megum ekki gefast upp.“

Hún er rokin. Farin að pakka fyrir Everest grunnbúðagönguna. „Já. Ég er klikkuð,“ hlær hún að endingu.

Hér er okkar kona stödd í Bólivíu. Búin að landa golden dorado. Þetta er einn af þessum fiskum sem margir veiðimenn eltast við. Hér er hún á vegum Tsimane lodge sem gerir út þar í landi og skipuleggur ferðir fyrir veiðimenn. Ljósmynd/Florian Kaiser

Viðtalið tók Eggert Skúlason