Á þriðja hundrað myndir verið sendar inn og birtar í myndasafni keppninnar.
Um 600 börn og ungmenni eru skráð í keppnina
Veiðikeppni unga fólksins hófst á sumardaginn fyrsta og hefur staðið yfir í allt sumar. Keppninni lýkur 9. ágúst. Um 600 börn og ungmenni eru skráð í keppnina og hafa á þriðja hundrað myndir verið birtar í myndasafni keppninnar.
Keppnin snýst um að veiða sem flestar tegundir fiska og keppt er í þremur flokkum en veiðimenn þurfa að ná þremur, sex eða níu tegundum á keppnistímabilinu. Hér skiptir stærð og þyngd fiska ekki máli.
Við höfum fengið myndir af allskyns fiskum og stundum jafnvel lent í erfiðleikum með að þekkja fiskana sem birst hafa. Þannig höfum við þurft að leita til Hafrannsóknarstofnunar til að bera kensl á fisk.
Verkefnið fór af stað sem tilraunaverkefni í vor og hefur verið svo skemmtilegt að það verður klárlega endurtekið á næsta ári. Markmiðið er að fá sem flesta krakka hafa gaman og fara út að veiða í allt sumar, á bryggjurnar eða vatnsbakkana og stunda veiðisportið með fjölskyldunni.
Keppnin er haldin með Abu og allir krakkar sem hafa skráð fisk og sent inn mynd fá Abu spún að gjöf auk þess sem Abu vörur verða í vinninga í lok keppni. Öll börn sem skrá sig í keppnina fá litla veiðibók (á meðan birgðir endast) með reglum keppninnar og nokkrum síðum til þess að skrá aflann.

