Sage Sonic Outfit
139.900 kr.
Sage Sonic Outfit
Einstakt tækifæri til að eignast fluguveiðipakka af vönduðustu gerð á verulega góðu verði.
Við höfum sett saman einhendupakka með Sage Sonic flugustöng, Redington Run hjóli og nýju Rio Þyt línunni. Verðið á þessum pakka er eins og á stakri stönginni eða með öðrum orðum færðu frítt Redington Run fluguhjól, Rio Þyt og undirlínu frítt með stönginni.
Mjög takmarkað magn í boði á einstöku verði sem ekki verður endurtekið.
Stöngin
Sage Sonic er byggð á Konnetic tækni Sage og er því afar kraftmikil og
nákvæm en um leið sterkbyggð.
Sage Sonic einhendurnar eru góðar alhliða stangir, fáanlegar í ýmsum lengdum
og línuþyngdum. Hvort sem þú leggur smáa þurrflugu ljúflega á vatn eða
þarft að koma stórri straumflugu langt út er Sage Sonic stöngin fyrir þig.
Hvergi er til sparað í korki og lykkjum Sage Sonic eru fjögurra
hluta stangir og koma í vönduðum álhólki.
Allar Sage flugustangir eru handgerðar á vinnustofu Sage á Bainbridge eyju,
útifyrir Seattle í Bandaríkjunum.
Hjólið
Redington Run er létt hjól úr áli með koltrefja bremsudiskum og mjúku átaki. Hjólið er breiðkjarnahjól svo fljótlegt er að taka in slaka á línu eða spila fisk. Hjólið er fáanlegt fyrir vinstri og hægri snú. Hulstur fylgir.
Línan
Rio Þytur er flotlína sem er framleidd hjá Rio í Idaho í Bandaríkjunum fyrir Veiðihornið. Línan er með 7.3 metra haus og 2.7 metra mjókkun. Línan er því afar auðveld í köstum og hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum. Kjarni línunnar er sterkur og með 7% teygju. Kápan er SlickCast sem er sleipasta og endingarbesta kápan á markaðnum. Rio Þytur er þrílit lína með gulum haus og appelsínugulri rennilínu. Hleðslukaflinn á milli hauss og rennilínu er 1.5 metrar og hjápar flugukastara við að meta hve langt þarf að vera úti til þess að hlaða flugustöngina vel í kasti.