Silungaflugur í áskrift – 3ja eða 6 mánaða áskrift
17.985 kr. – 35.970 kr.
Silungaflugur í áskrift
·
Veiðihornið hefur hafið sölu á flugum í áskrift en þessi skemmtilega áskriftarleið hefur verið vinsæl meðal fluguveiðimanna í Bandaríkjunum um árabil.
·
Hægt er að velja um áskrift að annars vegar silungaflugum og hins vegar laxaflugum. Báðar áskriftir eru fáanlegar í tveimur mislöngum tímabilum, 3ja eða 6 mánaða áskriftarpökkum.
·
Einu sinni í mánuði fær áskrifandi senda fluguöskju með 6 til 10 flugum í ásamt glaðningi sem getur verið klippur, töng, tökuvari, línubón, taumastrekkjari eða annað nauðsynlegt á bakkann. Í boxinu eru einnig upplýsingar um flugurnar og síðast en ekki síst fylgir afsláttarávísun sem mun gilda á einni tiltekinni vöru í Veiðihorninu út mánuðinn en það getur verið vönduð flugustöng, vöðlur, fluguhjól, flugulína og margt fleira. Aukahlutir á þessum myndum eru bara hugmyndir að aukaglaðningum sem fylgja með flugum í áskrift. Það er alltaf gaman að fá spennandi pakka.
·
Afslættir fara stighækkandi í samræmi við lengd
áskriftar en þeir eru 10% silfurafsláttur í þriggja mánaða áskrift, 20% gullafsláttur í sex mánaða áskrift
·
Fyrstu pakkarnir verða sendir út í desember 2024 Hér er því um frábæra jólagjöf að ræða þar sem þiggjandinn fær fyrsta pakkann fyrir jól, annan pakka í janúar, þann þriðja í febrúar, fjórða í mars og svo framvegis eða eftir því hve löng áskrift er keypt.
·
Nýr, spennandi pakki í hverjum mánuði. Afsláttur fer stighækkandi eftir lengd áskriftar.
Aðeins 5.995 kr. á mánuði. Burðargjöld eru innifalin í verði.