Xmass Tree 1

995 kr.

Jólatré

Hugmyndavinnu  að þessari flugu eiga Óli í Veiðihorninu og Niklas Dahlin hjá Shadow Flies.

Flugan er hnýtt á laxaeinkrækju í laxaflugudagatalinu  en á straumflugukrók í silungaflugudagatalinu.

Nei, hún er ekki bara skraut þessi fluga.  Við vonum að þú hnýtir hana undir í sumar og veiðir hana eins og veitt er með Bomber.  Bomber er gjarnan kastað upp í straum og hann látinn reka frjálslega niður.  Bomber tökur geta verið yfirnáttúrulega spennandi

Stundum þegar taka er erfið þarf að gera eitthvað öðruvísi.  Til dæmis að nota flugur sem ekki hafa verið sýndar áður.  Þá kemur sér vel að eiga jólatré.  Þessi fluga er ekki í fjöldaframleiðslu.  Eingöngu þú og aðrir sem eiga jóladagatalið 24 laxaflugur til jóla eiga þessa flugu.

Við viljum nota tækifærið og segja þér frá nýju áskriftinni okkar en Veiðihornið hóf að selja veiðiflugur í áskrift nú í nóvember.  Þetta framtak hefur slegið í gegn og áskriftafjöldinn hefur farið framúr okkar björtustu vonum.  Kynntu þér áskriftina hér í hlekk neðar á síðunni.

Um leið og við hjá Veiðihorninu þökkum þér samfylgdina í jóladagatalinu í desember óskum við þér og þínu fólki gleðilegrar jólahátíðar með von um farsælt og fengsælt nýtt veiðiár,
María, Óli og starfsfólk Veiðihornsins

Uppselt

Veiðihornið