Veiðikortið 2022 er komið.

Veiðikortið 2022 er komið í Veiðihornið Síðumúla og hér í netverslun.
 
Veiðikortið er án efa besti kostur þegar kemur að veiðileyfakaupum því fyrir aðeins 8.900 krónur fæst aðgangur að 34 vatnasvæðum allt veiðitímabilið.
 
Veiðikortið er að hefja sitt átjánda starfsár.  Allt frá fyrsta degi hefur Veiðikortinu verið mjög vel tekið og þessum frábærum viðtökum má þakka það að hægt hefur verið að bjóða upp á frábæra valkosti í vatnaveiði. 
 
Veiðikortið er mjög hagkvæmur valkostur sem hentar jafnt veiðimönnum sem fjölskyldufólki. Með Veiðikortið í vasanum er hægt að veiða nær ótakmarkað í 34 veiðivötnum víðsvegar um landið sem og tjalda endurgjaldslaust við mörg þeirra. Nú gefst fólki loksins kostur á að stoppa við falleg vötn, í skemmri eða lengri tíma, án þess að þurfa að eyða miklum tíma í að finna út hvert á að fara til að kaupa veiðileyfi, eða hvort það sé fiskur í vatninu og þar fram eftir götum.
 
Með kortinu fylgir veglegur bæklingur og í honum eru lýsingar á veiðisvæðunum, reglur, kort og myndir.  Einnig eru grunnupplýsingar á ensku í bæklingnum. Allur texti í bæklingi má finna á www.veidikortid.is bæði á íslensku og ensku og auk þess hægt að nálgast rafræna útgáfu.
 
Veiðihornið