Laxaflugur í áskrift – 3ja eða 6 mánaða áskrift
17.985 kr. – 35.970 kr.
Laxaflugur í áskrift
·
Veiðihornið hefur hafið sölu á flugum í áskrift en
þessi skemmtilega áskriftarleið hefur verið vinsæl meðal fluguveiðimanna
í Bandaríkjunum um árabil.
·
Hægt er að velja um áskrift að annars vegar silungaflugum og hins vegar laxaflugum. Báðar áskriftir eru fáanlegar í tveimur mislöngum tímabilum, 3ja eða 6 mánaða áskriftarpökkum.
·
Einu sinni í mánuði fær áskrifandi senda fluguöskju
með 6 til 10 flugum í ásamt glaðningi sem getur verið klippur, töng,
tökuvari, línubón, taumastrekkjari eða annað nauðsynlegt á bakkann. Í
boxinu eru einnig upplýsingar um flugurnar og síðast en ekki síst
fylgir afsláttarávísun sem mun gilda á einni tiltekinni vöru í
Veiðihorninu út mánuðinn en það getur verið vönduð flugustöng, vöðlur,
fluguhjól, flugulína og margt fleira. Aukahlutir á þessum myndum eru
bara hugmyndir að aukaglaðningum sem fylgja með flugum í áskrift. Það
er alltaf gaman að fá spennandi pakka.
·
Afslættir fara stighækkandi í samræmi við lengd
áskriftar en þeir eru 10% silfurafsláttur í þriggja mánaða áskrift, 20% gullafsláttur í sex mánaða áskrift
·
Fyrstu pakkarnir verða sendir út í desember 2024 Hér
er því um frábæra jólagjöf að ræða þar sem þiggjandinn fær fyrsta
pakkann fyrir jól, annan pakka í janúar, þann þriðja í febrúar, fjórða í
mars og svo framvegis eða eftir því hve löng áskrift er keypt.
·
Nýr, spennandi pakki í hverjum mánuði. Afsláttur fer stighækkandi eftir lengd áskriftar.
Aðeins 5.995 kr. á mánuði. Burðargjöld eru innifalin í verði.