Seychelleseyjar í Indlandshafi

Tegundaúrvalið er mikið. Hér er einn af þeim sem margir sækjast eftir, Bumphead Parrotfish. Þeir eru varir um sig og ferðast um í torfum. Styggð kemur auðveldlega að þeim.

Sjónveiði og lúxus

Eyríkið Seychelleseyjar úti fyrir Austurströnd Afríku hefur verið vettvangur ævintýra fyrir fjölmarga stangaveiðimenn. Eyjarnar eru taldar vera 115 og í landinu búa ríflega 120 þúsund manns. Í hugum margra stendur nafn landsins fyrir magnaða stangveiði hvort sem er af bátum eða frá landi. Þarna er að finna margar af eftirsóttustu tegundum sem saltvatns veiðimenn sækjast eftir. GT eða Giant Trevally kemur fyrst upp í hugann en sú tegund er þekkt fyrir styrk og stærð.

Keith Rose-Innes er einn af stofnendum Blue Safari og framkvæmdastjóri félagsins. Hér lyftir hann Bumpie (Bumphead Parrotfish) upp fyrir myndataöku.

Stóra nafnið þegar kemur að stangaveiði á Seychelles er Keith Rose-Innes sem er einn af stofnendum Blue Safari fyrirtækisins sem annast nokkra af helstu áfangastöðum í eyjaklasanum. Keith er jafnframt framkvæmdastjóri félagsins. Þó að hann gegni slíku starfi þá er hann langt í frá að vera skrifstofumaður. Hann er ævintýradrifinn og hefur lifað litríku lífi og veitt nánast allan heiminn. Þó eru tveir áfangastaðir sem hann á eftir að heimsækja og veiða. „Það eru tveir áfangastaðir sem ég hef ekki enn veitt. Það er Argentína og Ísland. Þetta eru staðir sem mig langar að heimsækja og þeir eru efstir á listanum,“ segir Keith þegar Veiði nær tali af honum.

Fundu eyjuna 2005

Þegar við tölum um áfangastaðina sem Blue Safari stjórnar og rekur er það ekki tilviljun að Alphonseyja er fyrsti staðurinn sem hann nefnir. Hann kom þangað fyrst árið 2005 í leit að stórkostlegum veiðistöðum. Þegar hann kom fyrst til eyjunnar var hún í niðurníðslu og satt best að segja bar þess merki að þar hefði verið gengið illa um. Veiðimenn höfðu stundað eyjuna án þess að hafa til þess leyfi og það var töluvert átak fyrir Keith og félaga hans að hreinsa upp eyjuna og í framhaldi af því tóku þeir hana í fóstur í samstarfi við yfirvöld. Keith og hans teymi hafa í dag gerbreytt Alphonseeyju og með miklu átaki gert hana að einum vinsælasta áfangastað veiðimanna og náttúruáhugafólks. Þeir hafa hlúð að fuglalífi og rannsakað fiskistofnana í kringum kóralrifin og náð að byggja þá upp líka. Það má heyra á Keith að hann ber sterkar taugar til eyjunnar. Svo eru það allir hinir áfangastaðirnir. „Farquhar, Providence, Cosmoledo, Astove, Platte, Desroches og Amirante eyjaklasinn, svo ég nefni þá helstu,“ sagði Keith aðspurður um hvar Blue Safari væri með áfangastaði.

Þessar eyjar eru allar afskekktar og fullkomlega út af fyrir sig. Misjafnt er hversu margar stangir eru á hinum ólíku stöðum. Þannig er pláss fyrir tólf veiðimenn á Alphonseyju. Bæði Cosmoledo og Farquhar gera ráð fyrir tíu veiðimönnum. Amirante eyjaklasinn býður upp á aðstöðu fyrir fjóra og helgast það af því að þar er gist um borð í báti og káeturnar eru fjórar. Þannig er hver staður byggður upp með mismunandi fjölda veiðimanna eftir aðstæðum á hverjum stað.

Hvaða tegundum ertu að leita að?

Þegar talið berst að því hvort hann eigi sér sjálfur uppáhaldsstað þá snýr hann þeirri spurningu við. „Það fer svo mikið eftir því hvaða tegund þú ert að leita að. Ef þú leitar að Giant Trevally þá eru það til dæmis, Cosmoledo, Astove, Farquhar eða Providence. Ef að draumurinn er að veiða Bonefish eða Permit í bland við allar hinar tegundirnar þá myndi ég mæla með Alphonse. Amiranteseyjarnar eru mjög spennandi fyrir Permit. Allir staðirnir hafa sína sérstöðu þannig að það erfitt fyrir mig að gera upp á milli. Oft ræður því hvaða áfangastaður verður fyrir valinu, þær tegundir sem þú vilt kasta á og líka hvaða aðbúnaði ertu að sækjast eftir. Svo koma fleiri hlutir inn í myndina. Viltu vaða og veiða eða viltu kasta af báti, eða kannski bæði? Alphonseeyja er líklegasta besti staðurinn til að byrja á. Þar ertu með allar helstu tegundirnar og svæðið býður upp á mikla fjölbreytni. Þar erum við líka með glæsilega aðstöðu og hafi gestir okkar áhuga á er hægt að gera fleiri hluti en bara veiða. Samt er það þannig hjá okkar viðskiptavinum að þeir koma fyrst og fremst til að veiða.“

Keith hefur veitt allar þessar tegundir og eins og gefur að skilja þekkir hann alla áfangastaðina eins og lófann á sér. Ef hann þyrfti að velja einn stað til að fara á. Hvað myndi hann velja?

Seychelles er ævintýraheimur þar sem mikið er lagt upp úr því að aðbúnaður sé eins og best verður á kosið.

Íslendingum fjölgar

„Ég er varla rétti maðurinn til að svara þessu en valið myndi standa á milli Alphonse, Cosmoledo og Farquhar. Alphonse hefur Bonefish og Milkfish ásamt öllum hinum tegundum og svo á Farquhar eru líka spennandi tegundir en ef ég væri að fara að leita að Giant Trevally færi ég líklega til Cosmoledo.“ Hann hlær og spyr hvort að það sé ekki að dragast upp sú mynd að hann geti ekki gert upp á milli þessara staða þegar á reynir.

Vaxandi fjöldi íslenskra veiðimanna sækir til Seychelleseyja, segir Keith. Sú aukning hefur verið mest síðari ár og vinsælasti staðurinn hjá þeim hefur verið Alphonse. „Eins og ég segi, margir byrja þar og svo sækir fólk í öðruvísi ævintýri og ég veit um þó nokkra Íslendinga sem hafa farið á þessu helstu staði sem við bjóðum upp á. Hingað koma margir sem eru að leita að fjölbreytileikanum. Fjölda tegunda og það er svo magnað að þetta eru allt kraftmiklir fiskar og spennandi viðureignir. Svo er alltaf gott að vita af þessum stóru líka,“ brosir hann.

Veiðisvæði Blue Safari bjóða viðskiptavinum upp á lánsbúnað ef þörf er á því. Slíkur búnaður er innifalinn í verðinu en komi til þess að stöng brotni þá er rukkað fyrir kostnaðinn fyrir því að senda stöngina í viðgerð. „Hins vegar verða veiðimenn alltaf að kaupa sínar eigin flugulínur og þeir geta gert það hjá okkur. Við treystum okkur ekki til þess að ábyrgjast hvernig ástand línunnar er eftir að hún hefur verið notuð af öðrum. Þú í raun og veru þarft bara að koma með sólgleraugu og vöðluskó. Við eigum þetta til í búðinni okkar og hægt að kaupa allar þessar græjur og aðbúnað þar, en flestir koma með sinn eiginn búnað. Við eigum hins vegar allt til hérna. Ef til dæmis ferðatöskurnar þínar myndu týnast á leiðinni þá getum við græjað þig upp. Ekkert vandamál.“

Og hverju má maður svo búast við ef maður mætir til, tökum sem dæmi Alphonse? Hvernig gerist þetta?

Það eru allar útgáfur í boði. Veitt af bátum, af ströndinni eða vaðið á grunnsævi.
Leiðsögumaðurinn hefur komið auga á fisk og bendir með stönginni. “Þarna eru þeir.”

Fyrsti túrinn oft lærdómsferli

„Já. Það er mjög gott að byrja þar. Þægilegur staður bæði upp á veiðina sjálfa og einnig allan aðbúnað. Við byrjum á að kynna fólk fyrir Bonefish. Hvernig á að setja í þá og takast á við þá. Svo eru það hinar tegundirnar. Triggerfish, Milkfisk og við köstum á Barracuda og Giant Trevally. Á grynningunum köstum við á nokkrar tegundir af Triggerfish og svo er það Permit. Við förum líka lengra út og þá á bátum og reynum við enn fleiri tegundir. Það er mikið að læra og taka inn þegar fólk kemur í fyrsta skipti. Við réttu skilyrðin getum við alveg lent í því að landa öllum þessum tegundum sem ég nefndi áðan. Það eru náttúrulega frábærir dagar þegar það gerist. Ég held að fyrir flesta sem eru að koma í fyrsta skipti til Seychelleseyja þá er fyrsti túrinn í raun og veru lærdómsferð. Það er svo margt sem þarf að hugsa um og hvernig þú tekst á við ólíkar tegundir. Þarna eru leiðsögumennirnir okkar afar dýrmætir. En geta veiðimannsins skiptir líka máli. Þú þarft að geta kastað og vera tilbúinn að taka við leiðbeiningum og upplýsingum frá leiðsögumanninum. Sérstaklega fyrstu dagana. Megnið af veiðinni hjá okkur er sjónveiði. Þú sérð fisk, eða leiðsögumaðurinn bendir þér á fisk og þú kastar á hann. Í fyrstu ferðinni þinni getur þú ekki búist við því að setja í þá alla. Flestir sem eru að byrja í saltveiði hafa ekki þekkinguna til að gera það. Svo lærir fólk og þá verður þetta enn meira spennandi. Að sjá þá koma og taka og kunna að bregðast við. Það sem er alveg á hreinu er að við munum koma þér í færi við fullt af fiski.“

Það gildir það sama um Seychelles­eyjar og aðra áfangastaði veiðimanna. Það er mikilvægt að vera búinn að ná tökum á fluguveiði áður en farið er á slíkar slóðir. „Við höfum fengið fólk sem kann lítið og býst hreinlega við því að fiskurinn bara stökkvi á fluguna. En þú verður að geta kastað svo að eitthvað gerist. Það gildir það sama hér hjá okkur og væntanlega á öllum veiðisvæðum. Vertu búinn að læra og tileinka þér grunnfærnina. Þá verður veiðitúrinn bæði skemmtilegri og árangursríkari.“

Keith hefur veitt um nánast allan heim. Á þó eftir að koma til Íslands. Í Síberíu landaði hann þessum Taimen.

Veitt nánast allan heiminn

Keith Rose-Innes er afar reynslumikill þegar kemur að hvers konar veiðiskap. Hann kom fyrst til Seychelles 1994 og byrjaði í leiðsögn á svæðinu rétt fyrir aldamót. Hann hefur veitt allt sitt líf, svarar hann þegar hann er spurður hvenær hann hafi byrjað.

Hann hefur sannarlega farið um allt. Var leiðsögumaður við Ponoi ána á Kólaskaga í fjögur ár. Hann veiðir í Noregi á hverju ári og þar er Alta árlegur áfangastaður. Hann hefur farið um allt, bókstaflega eins og kom fram áður. Veitt nánast í öllum löndum Afríku og Mexíkó. Það er svona smá Hemingway blær yfir honum.

Lykilorðið er sjálfbærni

Nánast öllum fiski er sleppt aftur á Seychelles og það kemur fyrir að sami fiskurinn veiðist aftur. „Við erum með margskonar rannsóknir í gangi í samstarfi við vísindamenn. Stundum setjum við sérstakt merki í fiskinn, rétt undir roðið við bakuggann. Allir leiðsögumennirnir okkar eru með litla skanna þannig að þeir tékka á þessum fiskum hvort þeir hafi veiðst áður. Stundum kemur það fyrir að skanninn fær svörun, en það er ekki oft. Það er svo mikið af fiski þarna.“

Þegar Keith horfir til framtíðar þá segir hann að lykilorðið sé sjálfbærni og að ekki sé gengið á náttúruna með nokkrum hætti. „Okkar fyrsta markmið er að vanda okkur á þeim stöðum þar sem við erum nú þegar. Við erum hins vegar alltaf að skoða nýja staði og erum meðal annars í samstarfi við fyrirtækið African Waters sem skipuleggur veiðiferðir á framandi slóðir. Á þeirra lista er að finna veiðiferðir til Afríkuríkja á borð við Gabon, Lesotho í leit að Yellowfish, Suður-Afríku og Tansaníu að kasta á Tarpoon svo einhverjir staðir séu nefndir.

Arapaima og sjóbirtingur

En maður eins og Keith, sem er að verða fimmtugur. Er eitthvað sem hann á eftir að gera fyrir utan að koma til Íslands og Argentínu? Er einhver tegund sem hann dreymir um að veiða og hefur ekki enn landað?

„Já, já. Það eru nokkrar tegundir sem ég hef ekki veitt. Fyrsta sem mér dettur í hug er Arapaima. Mig langar virkilega að komast til að veiða hann í sínu náttúrulega umhverfi. Svo á ég eftir að veiða stóran sjóbirting. Ég hef veitt litla en langar að setja í svona alvöru eintak.“ Hann nefnir Argentínu sem vænlegan áfangastað fyrir sjóbirtingsveiði, en bætir við að hann hafi heyrt af slíkum ævintýrum líka á Íslandi. Þessi maður er með þetta allt kortlagt.

Taimen og Giant Trevally

Merkilegasti fiskur sem hann hefur veitt eða sá sem var erfiðast að ná í?

„Ég fór til Síberíu og veiddi nokkrar ár þar. Við vorum að leita að Taimen og við fengum fiska upp í hundrað pund. Það fannst mér ótrúlega magnað sérstaklega þegar maður horfir á þann fisk út frá staðsetningu og hvert við vorum komnir. En þegar maður talar um erfiðustu fiskana þá er það Giant Trevally. Ég fékk einu sinni einn sem mældist 136 sentímetrar. Það var svakalegur bardagi og þegar þú setur í slíkan fisk af stærri gerðinni eru það rosaleg átök. Þessir fiskar eru svo sterkir og sprettharðir að það þeir eiga engan sinn líkan.“ Svo stór GT eins og Keith landaði eru ekki algengir myndi maður halda. Keith mótmælir því og segir að töluvert sé um slíka fiska við Seychelles. Það sem er kannski merkilegt við metfiskinn hans er að sá fiskur veiddist á grunnsævi og Keith var búinn að sjá hann og kastaði á hann. Vanalega eru þessir stærstu að veiðast á dýpra vatni.

Stærsti skráði GT sem veiðst hefur á stöng í heiminum var um 170 sentimetrar og veiddist við Japan árið 2006. Sá fiskur mældist 72,6 kíló.

En hvað kostar svo að koma?

Keith segir að verðið sé mjög misjafnt og einn af þeim þáttum sem þar ráða upphæðinni er fjarlægð frá aðaleyjunni. Þess lengra sem er flogið þess hærra verður verðið. Að sama skapi er hægt að velja um misjafna gistiaðstöðu og það getur líka haft áhrif á verðið. „Pakkarnir okkar eru frá 15 þúsund dollurum og upp úr. Það er rétt að hafa í huga að inni í því er nánast allt. Gistingin, matur og allir drykkir, leiðsögumenn og aðgangur að öllum búnaði. Við erum að markaðssetja okkur sem fullreyndur áfangastaður með mikið af fiski og frábæru umhverfi. Við reynum að hafa allt upp á tíu okkar megin. Það eina sem getur í raun dregið úr þeirri upplifun sem við bjóðum upp á er viðskiptavinurinn sjálfur og svo auðvitað veðrið sem alltaf er óvissuþáttur í allri veiði.“

Og hvað kostar þetta svo?

Fimmtán þúsund dollarar eru í kringum 1,8 milljónir króna. Þá er eftir flugfarið. Ef við deilum þessu niður á þær sjö nætur sem dvalið er á áfangastað þá er sólahringurinn í kringum 265 þúsund krónur. Það er eins og gott laxveiðileyfi á Íslandi. Að vísu er matur innifalinn á Seychelles.

En vissulega er ferðalagið langt en ef einhver er með frekari spurningar í kringum þessa veiði og ferðalagið eða aðbúnað, þá erum við í Veiðihorninu búin að heimsækja flesta þessa staði og höfum veitt þarna oft. Ekki hika við að kíkja á okkur og forvitnast. Bara vara ykkur við áður en þið komið. Við erum ástfangin af þessari veiði.

Gistimöguleikar eru margvíslegir. Hér eru lítil prívat hús við ströndina. Örfáir metrar og ströndin tekur við.

Viðtalið tók Eggert Skúlason