Jóladagatal 2024 – 24 laxaflugur til jóla – Forsala

15.995 kr.

24 laxaflugur til jóla er hið eina sanna jóladagatal laxveiðimannsins.

Í dagatalinu eru 24 flugur til jóla, ein fyrir hvern dag frá 1. til 24 desember.  Allar flugurnar í dagatalinu eru vandaðar og vel hnýttar af fluguhnýturunum okkar hjá Shadow Flies.
Hverri flugu fylgir QR kóði sem færir eigandanum frekari upplýsingar um fluguna, upplýsingar um hvernig á að veiða með henni, upplýsingar um höfund hennar og uppskrift eða skemmtileg frásögn.

Jóladagatal Veiðihornsins seldist upp í forsölu 2022 og 2023 og fengu miklu færri en vildu.  Tryggðu þér eintak af þessu vinsæla jóladagatali í forsölu strax í dag.

Nöfn allra þeirra sem kaupa 24 flugur til jóla í forsölu í netverslun lenda í potti.  Nafn eins heppins verður dregið úr pottinum á aðfangadagsmorgun og ætlum við í Veiðihorninu að gefa viðkomandi í jólagjöf vinsælustu flugustöngina á markaðnum, Sage R8 Core að eigin vali en stangirnar eru framleiddar í línuþyngdum frá 3 til 8 og í lengdum frá 9 til 10 fet.  Verðmæti jólagjafarinnar er 179.900 krónur.

Hvað aðhafast þeir á sumrin?
Veiða auðvitað í heiðavötnum, ám og lækjum. 
Hinn frábæri teiknari Halldór Baldursson hjálpaði okkur að draga upp fáeina veiðisveina við uppáhalds iðju sína á sumrin en allar frekari upplýsingar um veiðisveinana er að finna í dagatölunum sjálfum.
Hönnuðurinn okkar Heimir Óskarsson sá um heildar útlit dagatalanna 24 laxaflugur til jóla og 24 silungaflugur til jóla og snillingarnir hjá Shadow Flies sjá um vel hnýttar, fallegar og umfram allt veiðnar flugur.

Forsalan er hafin.
Jóladagatöl Veiðihornsins seldust upp í forsölu 2022 og 2023.
24 laxaflugur til jóla inniheldur 24 veiðnar og vel hnýttar laxaflugur – Ein ný spennandi með morgunmatnum alla daga til jóla ásamt fróðleik og skemmtilegheitum.
Íslenskt veiðijóladagatal fyrir íslenska veiðimenn.

Tryggðu þér eintak áður en það verður of seint.

24 laxaflugur til jóla er gjöf sem gleður.

24 laxaflugur verða tilbúnar til afhendingar í nóvember.

Greiðsluleiðir í boði:

  • Kort eða Aukakrónur Kort eða Aukakrónur
  • Netgíró Netgíró
  • Síminn Pay Léttkaup Síminn Pay Léttkaup
  • Veiðihornið netgjafabréf Veiðihornið netgjafabréf
  • Aur appið Aur appið
Síminn Pay Léttkaup
kr/mán
(m.v. mán)

mán.

Miðað við greiðslur á % vöxtum.

Aðeins % lántökugjald og kr. færslugjald á mánuði.

Árleg hlutfallstala kostnaðar: %.

Heildarkostnaður: kr.

Shadow Flies