Hvar var besta veiðin sumarið 2022?

Stefán og Harpa fagna fyrsta laxinum á Íslandi 2022. Landeigandinn Haraldur Einarsson er sáttur. Urriðafoss gaf mesta veiði á dagsstöng sumarið 2022, eða 2,73 laxa. Ljósmynd/Eggert Skúlason


Veiði á stöng á dag er lík­leg­ast besti mæli­kv­arðinn þegar horft er til þess, hvar besta veiðin var í sum­ar? Við höf­um tekið sam­an lista yfir ríf­lega þrjá­tíu ár þar sem þetta hlut­fall er reiknað út. Þrátt fyr­ir að ekki liggi fyr­ir loka­töl­ur í Urriðafossi í Þjórsá er svæðið með mestu meðal­veiði á hverja dags­stöng eða 2,73 laxa. Í öðru sæti er svo Leir­vogsá með 2,53 laxa á stöng á dag.

Flóka­dalsá er með tæpa tvo laxa á stöng á dag. Það þýðir að hver veiðimaður þar í sum­ar veiddi á þrem­ur dög­um að meðaltali sex laxa, að því gefnu að hann hafi verið einn á stöng. Á móti kem­ur að hafi sami veiðimaður farið í Langá, sem er með hlut­fallið 1,00 lax­ar á stöng á dag, hefði hann mátt bú­ast við að ná þrem­ur löx­um í þriggja daga holli. Það hefði líka sam­kvæmt meðaltal­inu gert það að verk­um að veiðifé­lagi hans hefði núllað.

Jón Stefán Hann­es­son þreyt­ir lax í Renn­um í Leir­vogsá, skammt fyr­ir neðan Trölla­foss.
Árni Krist­inn Skúla­son er klár með háfinn. Leir­vogsá gaf 2,53 laxa á dags­stöng­ina. Ljós­mynd/​Anne Wangler

Hér að neðan er list­inn yfir árn­ar þar sem miðað er við veiði á dag­stöng. Þessi listi er unn­inn út frá upp­lýs­ing­um áangling.is, eins og töl­urn­ar standa núna. Lands­sam­band veiðifé­laga held­ur úti þeim vef. Flest­ar ár eru bún­ar að birta loka­töl­ur. Reikni­formúl­an er ein­föld. Fjöldi stanga í viðkom­andi á deilt með fjölda veiddra laxa. Við tök­um þetta enn lengra og deil­um í með 90, sem er fjöldi veiðidaga í flest­um ám. Þá kem­ur út hver veiðin er á stöng á dag að meðaltali. Það er hinn raunsanni mæli­kv­arði á hversu mik­il veiðivon var í ein­stök­um ám. Hér er ekki tekið til­lit til verðs, þjón­ustu, tíma­bils eða slíkra þátta. Ein­göngu er horft á töl­ur.

Laxá á Ásum er í þriðja sæti þegar horft er á veiði á dagsstöng. Þá státar áin líka af stærsta laxi sumarsins.
Hér eru Sturla Birgirsson og Falmouth lávarður með 105 sentímetra fisk sem sá síðarnefndi veiddi í Langhyl 22. júlí. Ljósmynd/SB

Inn­an sviga við hverja veiðiá er fjöldi stanga. Næsti dálk­ur til­grein­ir heild­ar­veiði og inn­an sviga er fjöldi laxa á hverja stöng yfir sum­arið. Loks er það svo lax á hverja stöng á dag og inn­an sviga sama hlut­fall í fyrra. Þá má sjá hvort veiði hafi auk­ist eða minnkað.

Heildarveiði pr. stöng 2022

Inn­an sviga við hverja veiðiá er fjöldi stanga. Næsti dálk­ur til­grein­ir heild­ar­veiði og inn­an sviga er fjöldi laxa á hverja stöng yfir sum­arið. Loks er það svo lax á hverja stöng á dag og inn­an sviga sama hlut­fall í fyrra. Þá má sjá hvort veiði hafi auk­ist eða minnkað.

VeiðisvæðiHeildarveiði/​per stöngÁ stöng á dag
Urriðafoss (4)983 (246)2,73 (2,29)
Leirvogsá (2)455 (228)2,53 (1,55)
Laxá á Ásum (4)820 (205)2,28 (1,66)
Selá í Vopnafirði (6)1.164 (194)2,15 (1,41)
Flókadalsá (3)519 (173)1,92 (1,04)
Hofsá í Vopnaf. (7)1.211 (173)1,92 (0,95)
Andakílsá (2)327 (164)1,82 (2,88)
Miðfjarðará (10)1.522 (152)1,69 (2,00)
Haffjarðará (6)870 (145)1,61 (1,70)
Elliðaár (6)798 (133)1,48 (1,14)
Laxá í Leirársveit (6)800 (133)1,48 (1,51)
Tungufljót (4)526 (131)1,46 (*)
Laxá í Dölum (6)761 (127)1,41 (1,89)
Laxá í Kjós (8)1.017 (127)1,41 (1,47)
Svalbarðsá (3)381 (127)1,41 (0,88)
Hítará (6)708 (118)1,31 (0,76)
Jökla (8)803 (100)1,16 (0,75)
Þverá/​​​Kjarrá (14)1.448 (103)1,15 (1,10)
Grímsá (8)827 (103)1,15 (1,05)
Víðidalsá (8)810 (101)1,12 (1,02)
Hafralónsá (4)388 (97)1,08 (0,63)
Norðurá (15)1.352 (95)1,05 (1,06)
Stóra - Laxá (10)934 (93)1,03 (0,62)
Langá (12)1.077 (90)1,00 (0,77)
Straumfjarðará (4)348 (87)0,97 (1,02)
Hrútafjarðará (3)257 (86)0,95 (1,38)
Haukadalsá (5)366 (73)0,81 (0,81)
Blanda (8)577 (72)0,80 (0,58)
Vatnsdalsá (6)415 (69)0,77 (0,79)
Mýrarkvísl (4)272 (68)0,75 (0,50)
Laxá í Aðaldal (12)402 (34)0,37 (0,37

* Ekki til­tæk­ar töl­ur frá í fyrra.

Svo er hægt að fara inn á angling.is og finna sína á og reikna út þetta hlut­fall. En list­inn er ansi frá­brugðinn þeim lista þar sem ein­göngu er horft til heild­ar­tölu, óháð fjölda stanga.

Þar sem enn er nokkuð eft­ir af veiðitíma í Rangán­um og fleiri ám á því svæði, eru þær ekki tekn­ar inn í þenn­an út­reikn­ing. Þá er líka vert að hafa í huga að upp­gef­inn fjöldi stanga er tek­inn af angling.is en þar geta hafa orðið breyt­ing­ar. Má nefna að í Miðfjarðará er veitt á sex stang­ir fyrri hluta veiðitím­ans og myndi það hækka hlut­fallið þar veru­lega, væri tekið til­lit til þess. Sama má segja um Laxá í Döl­um en þar er veitt á fjór­ar stang­ir fram­an af veiðitím­an­um. Laxá í Kjós er einnig með færri stang­ir fram­an af veiðitíma. Þá er líka vert að hafa í huga með Jöklu og Blöndu að þar náðist ekki níu­tíu daga veiðitími og hlut­fallið þar því í raun hærra en þessi reikni­formúla gef­ur til kynna.

Eggert Skúlason

Sporðaköst – Fylgstu með lifandi veiðiumfjöllun.
Veiðihornið er samstarfsaðili Sporðakasta á mbl.is