Shooter’s Choice á Íslandi
Nýtt í skotveiðideild Veiðihornsins.
Veiðihornið hefur tekið við umboði og dreifingu á hinum þekktu vörum frá Shooter’s Choice í Bandaríkjunum. Flestir skotveiðimenn þekkja þetta viðurkennda merki en frá fyrirtækinu koma úrvals smur- og hreinsiefni fyrir skotvopn.
Í fyrstu sendingu sem kemur í hús nú í vikunni er gott úrval af hreinsiefnum sem leysa meðal annars upp kopar- blý- og plastagnir á öruggan og einfaldan hátt auk smurefna. Þá eru einnig að bætast við hreinsisett fyrir riffla í mörgum hlaupvíddum og haglabyssur í 12 og 20 gauge.
Allar vörur frá Shooter’s Choice verða fáanlegar í netverslun um helgina.
Veiðihornið