Nýjung í netverslun.
Netgjafabréf eru nú fáanleg í netverslun Veiðihornsins.
Þegar erfitt er að velja gjafir koma gjafabréf sér vel. Um langt árabil hafa gjafabréf Veiðihornsins verið vinsæl enda hvergi meira úrval af fatnaði og búnaði fyrir stang- og skotveiðimenn árið um kring.
Til viðbótar við gjafabréf Veiðihornsins sem áfram verða auðvitað fáanleg í Veiðihorninu Síðumúla 8 bjóðum við nú einnig smekkleg netgjafabréf sem hægt er að nota hér í veiðibúð allra landsmanna á netinu.
Ýmist er hægt að fá netgjafabréfin send með tölvupósti sem hægt er að áframsenda á þann sem á að fá gjöfina, senda netgjafabréfið á viðtakanda beint úr netverslun Veiðihornsins eða prenta það út til afhendingar.
Netgjafabréfin eru fáanleg á breiðu verðbili og veita viðtakanda gleði og hamingju.
Auðvelt og einfalt. Engir snúningar. Ekkert vesen.
Veiðihornið