Heimildamyndin Strengur fjallar um fjölskylduna í Árnesi sem hefur búið og starfað við Laxá í Aðaldal í sjö kynslóðir en aðalpersónur myndarinnar er einmitt nýja kynslóðin sem er mætt á bakkann. Fylgir myndin fjórum ungum konum, sem eru að stíga sín fyrstu skref sem leiðsögumenn í Laxá.
Færslur eftir flokki: Stangveiði
Allir þekkja Rio Þyt. Nú lokum við hringnum því Þytur kemur nú einnig í sökkhraða þrjú en fyrir eru flotlína og glær hægsökkvandi. Auk þess kynnum við Rio Blæ og Rio Storm.
Von er á sérfræðingi frá Simms í Gore-tex viðgerðum dagana 13. og 14. mars nk. Flyfish Europe sem er dreifingaraðili Simms í Evrópu rekur Gore-tex verkstæði í Noregi þar sem gert er við öll meiriháttar slysagöt á vöðlum og Gore-tex fatnaði.
Veiðihornið efnir til fluguhnýtingakeppni í mars. Við leitum að skemmtilegum flugum í Jóladagatalið 2026.
Árið var gott. – Laxveiðin var reyndar ekkert sérstök og stóð ekki undir væntingum en heilt yfir var silungsveiðin góð í ám og vötnum. Hreindýraveiði gekk vel í sumar. Kvótinn hefur minkað talsvert en við gerum ráð fyrir að kvótinn verði aukinn verulega á næsta ári. Gæsaveiði var svona upp og niður í haust og við upplifðum eitt besta rjúpnaveiðitímabil í mörg ár.
Ný stangafjölskylda frá Sage hefur litið dagsins ljós. Tvíhendur fyrir alla fiska og allar aðstæður. Tvíhendur sem ráða jafnt við Skagit, Scandi og hefðbundnar Spey línur.
Hin nýja SAGE Spey R8 er ólík öllum tvíhendum sem komið hafa úr smiðju SAGE undanfarin ár því hér er komin stöng með mun dýpri hleðslu. Með R8 tækninni vinnur þessi fislétta stöng djúpt niður í handfang en skilar afar snörpu kasti með miklum línuhraða og af mikilli nákvæmni.
Tungutakið okkar virðist stundum stirt og ekki alltaf auðvelt að snara öllum þessum flottu ensku frösum yfir á íslensku. Við eigum fjölda orða yfir snjó, vind og veður yfir höfuð en erum fátæk í orðavali þegar kemur að skordýrum og klakinu.
Ólafur Tómas Guðbjartsson, Óli urriði, upplýsir um lykilatriði sem hann hefði viljað vita fyrr á ferlinum. Það er í sjálfu sér hálf furðulegt að óska sér þess að hafa aldrei að fullu farið í gegnum það langa lærdómsferli sem silungsveiðin er og hafa þess í stað hreinlega vitað flest allt í upphafi. Ég er vissulega þakklátur fyrir hvern þann lærdóm sem ég hef dregið á mínum uppvaxtarárum sem veiðimaður.
Að taka fram vöðlurnar að vori er alltaf
jafn spennandi. Við viljum að sjálfsögðu
að þær séu í topp standi þegar stutt er í fyrsta veiðitúrinn. Þá er alltaf spurningin hvernig við gengum frá þeim síðasta haust. Þegar gengið er frá vöðlum eftir vertíðina er einkum þrennt sem mikilvægt er að hafa í huga.
Nú stendur yfir framleiðsla á vinsaælu jóladagatölum Veiðihornsins. Jóladagatölin verða til afgreiðslu í nóvember en forsala hefst nú strax í byrjun október. Líkt og fyrri ár verða jóladagatölin tvö í ár. Annars vegar 24 silungaflugur til jóla og hins vegar 24 laxaflugur til jóla.










