Færslur eftir flokki: Stangveiði

Seychelleseyjar í Indlandshafi

Eyríkið Seychelleseyjar úti fyrir Austurströnd Afríku hefur verið vettvangur ævintýra fyrir fjölmarga stangaveiðimenn. Eyjarnar eru taldar vera 115 og í landinu búa ríflega 120 þúsund manns. Í hugum margra stendur nafn landsins fyrir magnaða stangveiði hvort sem er af bátum eða frá landi. Þarna er að finna margar af eftirsóttustu tegundum sem saltvatns veiðimenn sækjast eftir. GT eða Giant Trevally kemur fyrst upp í hugann en sú tegund er þekkt fyrir styrk og stærð.

Veiðiparadís á hálendinu

Veiðivötn á Landmannaafrétti eru veiðiparadís sem fjölmargir veiðimenn hafa tekið ástfóstri við. Þetta er klasi vatna, einhvers staðar í kringum fimmtíu vötn sem geyma urriða og bleikju. Vötnin eru frjósöm lindarvötn á eldvirku svæði og misjöfn að stærð og lögun. Veiðifélag Landmannaafréttar er veiðiréttarhafi í vötnunum og sér um fiskrækt og veiðinýtingu.

24 flugur til jóla

Forsala er hafin. – Í fyrra fengu færri en vildu. Líkt og fyrri ár verða jóladagatölin tvö í ár. Annars vegar 24 silungaflugur til jóla og hins vegar 24 laxaflugur til jóla. Að þessu sinni verða jóladagatölin sérstaklega spennandi því í þeim er fjöldinn allur af nýjum leyniflugum.

Arapaima Gigas

Hjólið mitt öskrar i kyrrðinni, pinnstíf stöngin er kengbogin og línan skerst í auma fingurna. Eftir skamma stund lyftir hann sér og aftur og aftur. „Sástu hvað hann stökk hátt?“ kallaði Raffa, gædinn okkar þennan daginn. „Hann lyfti sér hátt í meter, hreinsaði sig alveg“ hélt hann áfram. – Þessi ógnarstóri fiskur minnti mig helst á Volkswagen rúgbrauð þar sem hann stökk í fjarska.

Sá stærsti sem enginn vissi um

Hugsunin um þennan stóra sjóbirting, þennan tröllvaxna birting lét Maros ekki í friði. Tveimur dögum síðar var Maros aftur að veiða og kom að hylnum þar sem hann hafði séð þann risastóra. Fiskurinn leyndi sér ekki þegar hann sá hann fyrst. Aðeins bjartari en hinir og svona líka svakalega þykkur.

Heimili þeirra stærstu

Hann er stórt nafn í laxveiðinni á norðurhveli. Þekkir bransann inn og út. Hann rekur Lakselv í nyrsta hluta Noregs og hefur verið í leiðsögn árum saman á Íslandi og veitt allar helstu ár hér á landi og í mörgum af þeim löndum sem hafa státað af góðri laxagengd. Þetta er hinn danski Henrik Kassow Andersen. Búsettur í Danmörku utan laxveiðitímans en þess á milli á ferð og flugi og oftast til nyrstu héraða Noregs.

Ísland er mitt annað heimili

„Hæ. Ég var að koma frá Oman og er að fara á Everest á morgun. En já ég hef tíma,“ brosir Katka Svagrová í myndspjalli. Hver fyllist ekki lotningu þegar fólk er með svona dagskrá. „Nei. Ég er ekki að fara að klífa Everest. Ætla bara í grunnbúðir af því að ég hef gaman af skemmtilegum gönguleiðum. Það er ekki nema í rúmlega fimm þúsund metra hæð. Ég er ekki fjallaklifrari.“

Galdurinn er að gefa af sér

„Match the hatch,“ er eitthvað sem silungsveiðimenn þekkja og reyna. Það hefur gengið erfiðlega að þýða þessa stuttu lykilsetningu þannig að hún hljómi jafnvel og upp á enskuna. Eltu klakið, fylgstu með klakinu, er það sem hún segir. Það er nákvæmlega það sem mjög margir silungsveiðimenn reyna að gera. Átta sig á því hvaða skordýr/flugur eru