Eyríkið Seychelleseyjar úti fyrir Austurströnd Afríku hefur verið vettvangur ævintýra fyrir fjölmarga stangaveiðimenn. Eyjarnar eru taldar vera 115 og í landinu búa ríflega 120 þúsund manns. Í hugum margra stendur nafn landsins fyrir magnaða stangveiði hvort sem er af bátum eða frá landi. Þarna er að finna margar af eftirsóttustu tegundum sem saltvatns veiðimenn sækjast eftir. GT eða Giant Trevally kemur fyrst upp í hugann en sú tegund er þekkt fyrir styrk og stærð.
Færslur eftir flokki: VEIÐI-viðtöl stangveiði
Veiðivötn á Landmannaafrétti eru veiðiparadís sem fjölmargir veiðimenn hafa tekið ástfóstri við. Þetta er klasi vatna, einhvers staðar í kringum fimmtíu vötn sem geyma urriða og bleikju. Vötnin eru frjósöm lindarvötn á eldvirku svæði og misjöfn að stærð og lögun. Veiðifélag Landmannaafréttar er veiðiréttarhafi í vötnunum og sér um fiskrækt og veiðinýtingu.
Hjólið mitt öskrar i kyrrðinni, pinnstíf stöngin er kengbogin og línan skerst í auma fingurna. Eftir skamma stund lyftir hann sér og aftur og aftur. „Sástu hvað hann stökk hátt?“ kallaði Raffa, gædinn okkar þennan daginn. „Hann lyfti sér hátt í meter, hreinsaði sig alveg“ hélt hann áfram. – Þessi ógnarstóri fiskur minnti mig helst á Volkswagen rúgbrauð þar sem hann stökk í fjarska.
Hugsunin um þennan stóra sjóbirting, þennan tröllvaxna birting lét Maros ekki í friði. Tveimur dögum síðar var Maros aftur að veiða og kom að hylnum þar sem hann hafði séð þann risastóra. Fiskurinn leyndi sér ekki þegar hann sá hann fyrst. Aðeins bjartari en hinir og svona líka svakalega þykkur.
Hann er stórt nafn í laxveiðinni á norðurhveli. Þekkir bransann inn og út. Hann rekur Lakselv í nyrsta hluta Noregs og hefur verið í leiðsögn árum saman á Íslandi og veitt allar helstu ár hér á landi og í mörgum af þeim löndum sem hafa státað af góðri laxagengd. Þetta er hinn danski Henrik Kassow Andersen. Búsettur í Danmörku utan laxveiðitímans en þess á milli á ferð og flugi og oftast til nyrstu héraða Noregs.
„Hæ. Ég var að koma frá Oman og er að fara á Everest á morgun. En já ég hef tíma,“ brosir Katka Svagrová í myndspjalli. Hver fyllist ekki lotningu þegar fólk er með svona dagskrá. „Nei. Ég er ekki að fara að klífa Everest. Ætla bara í grunnbúðir af því að ég hef gaman af skemmtilegum gönguleiðum. Það er ekki nema í rúmlega fimm þúsund metra hæð. Ég er ekki fjallaklifrari.“
„Match the hatch,“ er eitthvað sem silungsveiðimenn þekkja og reyna. Það hefur gengið erfiðlega að þýða þessa stuttu lykilsetningu þannig að hún hljómi jafnvel og upp á enskuna. Eltu klakið, fylgstu með klakinu, er það sem hún segir. Það er nákvæmlega það sem mjög margir silungsveiðimenn reyna að gera. Átta sig á því hvaða skordýr/flugur eru
Heimildamyndin Strengur fjallar um fjölskylduna í Árnesi sem hefur búið og starfað við Laxá í Aðaldal í sjö kynslóðir en aðalpersónur myndarinnar er einmitt nýja kynslóðin sem er mætt á bakkann. Fylgir myndin fjórum ungum konum, sem eru að stíga sín fyrstu skref sem leiðsögumenn í Laxá.
Arnar trommari Of Monsters and Men: Einn veturinn voru Of Monsters and Men, sú stórgóða og heimsþekkta hljómsveit að spila í Brixton Academy í London sem er einn af þekktari tónleikastöðum þar í borg. Það var nokkuð liðið á tónleikana og hitinn í höllinni var mikill. Æstir aðdáendur tóku undir með í hittaranum Little Talks. Andrúmsloftið var rafmagnað og tónleikarnir að ná hápunkti sínum.
Það þótti tíðindum sæta þegar lifandi laxveiðigoðsögnin Tóti tönn var fyrsti veiðimaður í heiminum til að fá afhenta nýju Sage Spey R8 tvíhenduna. Mikil leynd hafði hvílt yfir stönginni og opinberunardagurinn var 16. janúar. Það er staðfest af framleiðendum að Tóti, Þórarinn Sigþórsson var fyrsti veiðimaðurinn sem fékk hana í hendurnar. Og karlinn beið ekki boðanna hann fór með hana út á Klambratún og prófaði gripinn samdægurs.
- 1
- 2










