Hér er hún Unnur Lilja Snævarsdóttir með sinn fyrsta fisk, 45 sentimetra urriða sem hún veiddi í Ljósavatni þann 17. maí.  Fiskurinn tók bleikan spinner bókstaflega í fyrsta kasti og var auðvitað landað með nýju bleiku veiðistönginni.

Myndina tók Snævarr Örn Georgsson.

Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.