Tags:
Áll / Bleikja / Flundra / Koli / Krabbi / Krossfiskur / Urriði / Veidikeppni 2026 / Ýsa / Þorskur
Hann Niels Nói Thorlacius 6 ára er mjög áhugasamur ungur veiðimaður og kominn með 8 tegundir veiddar í sumar. Hann veiddi krossfisk og krabba í krabbagildru og auk þess þorsk, bleikju, urriða, ál, kola og flundru. Niels Nói er þegar farinn að æfa fluguköst og hnýta flugur.
Myndirnar sendi Sigríður Soffía Nielsdóttir.
Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.
