Bjarki Karl Hjaltested er kominn með tvær tegundir í veiðibókina sína, marhnút og urriða.  Hér sendir hann mynd af 400 gramma urriða sem hann veiddi á rækju á einkalandi.

Myndina tók Arnar Þór Hjaltested.

Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.

Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.