Guðmundur Sölvi Feykisson mætir hér með lax í keppnina og bætir við enn einni tegundinni sinni. Þennan 64 sentimetra lax veiddi Guðmundur Sölvi á túbuna Iðu í landi Iðu í Hvítá.
Myndina sendi Feykir Sveinsson.
Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.