Aron Breki Atlason bætir hér við þremur fiskum í veiðikeppnina.  Þennan urriða veiddi hann á gamlan spún í Vífilsstaðavatni.  Þá er hann hér með ufsa og marhnút sem hann veiddi á bryggjunni.

Myndirnar sendi Atli Rósinkarsson.

Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.