Hér koma nýjar myndir frá Kristjáni Agli Gíslasyni en hann bætir nú þremur tegundum við í keppnina.  Hér er Kristján með ufsa, sandkola og skrápflúru sem hann veiddi á svartan Toby í Suðureyrarhöfn.

Myndirnar tók Gísli Kristjánsson.

Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.