Hann Augustas er hörku veiðimaður en hér er þriðja myndasendingin frá honum.  Áður höfum við birt myndir af Augustas með staðbundinn og sjógenginn urriða en nú bætir hann við sjóbleikju og kola.
Augustas veiddi vel í skemmtilegri ferð með fjölskyldunni á Sauðárkrók þar sem hann landaði sjö 30 til 40 sentimetra sjóbleikjum og tveim kolum sem mældust um 40 sentimetrar.

Myndirnar tók Renata Kvedaraviciene.

Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.