Tags:
Flundra / Veidikeppni 2026
Hún Aldís Klara Arnarsdóttir er efnileg ung veiðikona. Við erum nýbúin að birta mynd af henni með fallega bleikju og hér er hún með 42 sentimetra flundru sem hún veiddi í Mýrarhúsum á flotholt og fluguna Kibba.
Myndirnar tók Arnar Már Hrannarsson.
Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá skemmtilega veiðimyndir
og elskum að heyra veiðisögur.
