Óðinn Hrafn Þórsson með vænan urriða sem hann veiddi á maðk í Hlíðarvatni í Hnappadal.  Fisknum sem vóg um eitt og hálft pund landaði Óðinn Hrafn alveg sjálfur því hann hafði fært sig fjarri öðrum veiðimönnum, á stað sem honum þótti líklegri til að gefa.

Myndina tók pabbi, Þór Ólafsson.

Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.

Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.