Tags:
Hrognkelsi / Urriði / Veidikeppni 2026 / Þorskur
Hann Jóhann Manúel er heldur betur duglegur veiðimaður. Hann veiðir næstum á hverjum degi og bryggjur og vötn þrædd þegar fjölskyldan ferðast. Hér eru nokkrar myndir frá Jóhanni. Fleiri bíða birtingar en hann er kominn með margar tegundir í keppnina. Á þessum sjáum við þorsk, urriða og hrognkelsi.
Myndirnar sendi Unnur Ósk Unnsteinsdóttir
Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.
