Tags:
Bleikja / Ufsi / Veidikeppni 2026
Kristmann Sigurbjarnarson mætir hér með tvo fiska í veiðikeppnina. Sá fyrri er sjóbleikja sem hann veiddi á spún í Hálsavatni, Rekavík á Hornströndum og naut aðstoðar afa, Magnúsar Kristmannssonar við löndun. Seinni fiskurinn er ufsi sem Kristmann veiddi á spún í Nauthólsvík. (Með honum á myndinni er starfsmaður Vatnasportsklúbbsins í Nauthólsvík).
Myndirnar tók mamma, Brynhildur Magnúsdóttir.
Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
