Systurnar Bríet og Marín Björgvinsdætur skruppu í Veiðihornið og náðu sér í veiðistangir og spúnabox.  Mikil spenna og gleði á því heimilinu því þær eru algjörar aflaklær og nú þegar komnar með 6 tegundir eða ufsa, ýsu, kola, marhnút, krossfisk og „mjóan snákfisk“ (sem sjá má á næstu mynd af þeim systrum).

Myndirnar tók Björgvin Þór Heiðarsson.

Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.