Tags:
Bleikja / Flundra / Koli / Krossfiskur / Marhnútur / Ufsi / Urriði / Veidikeppni 2026 / Þorskur
Magnús Máni Birgisson er orðinn mjög áhugasamur um veiði eftir þetta sumar og veltir fyrir sér hvar hægt sé að veiða hinar og þessar tegundir. Hann hefur meðal annars veitt marhnút, þorsk, ufsa, kola, flundru, bleikju og urriða auk þess sem hann krækti sér í krossfisk og krækling. Allar þessar tegundir veiddi Magnús Máni vítt og breitt um landið í sumar.
Myndirnar sendi Birgir Þór Halldórsson.
Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.
