Hann Theodór Helgi Þorbergsson er mættur til keppni með nokkrar tegundir.  Theodór veiddi 38 sentimetra urriða á spún og 32 sentimetra bleikju á Krókinn í Laugarbólsvatni og auk þess náði hann hornsíli í gildru.  Síðar veiddi Theodór marhnút á bryggjunni á Siglufirði.  Marhnúturinn kom á spún.

Myndirnar tók Þorbergur Haraldsson.

Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.