Tags:
Koli / Krossfiskur / Lax / Veidikeppni 2026 / Þorskur
Aron Ívar Baldursson er búinn að vera duglegur að veiða í sumar. Hér bætir hann nokkrum tegundum við. Aron veiddi marhnút og þorsk á bryggjunni í Búðardal, lax á orm í Búðardal, kola á gömlu bryggjunni í Reykjavík og krækti sér í krossfisk á bryggjunni á Akranesi.
Myndirnar sendi Baldur Þórir Gíslason.
Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.
