Tags:
Hornsíli / Karfi / Krossfiskur / Veidikeppni 2026 / Þorskur
Hér er Karítas Júlía Egilsdóttir mætt í veiðikeppnina. Hún náði sér í hornsíli í háf í Hrísatjörn á Dalvík, því næst skellti hún sér á sjó með afa og veiddi þorsk og karfa í Eyjafirði og loks krækti hún í krossfisk á bryggjunni á Dalvík.
Myndirnar sendi Egill Júlíusson.
Allir krakkar út að veiða og hafa gaman í allt sumar.
Við hlökkum til að fá veiðimyndir og elskum að heyra veiðisögur.
